Enski boltinn

Nýbúinn að missa starfið hjá Leeds en er að fara að taka við Southampton

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jesse Marsch verður kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Southampton innan tíðar.
Jesse Marsch verður kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Southampton innan tíðar. getty/Michael Regan

Flest bendir til þess að Jesse Marsch verði næsti knattspyrnustjóri Southampton, botnliðs ensku úrvalsdeildarinnar.

Enskir fjölmiðlar, meðal annars The Athletic, greindu frá þessu í morgun.

Marsch tekur við Southampton af Nathan Jones sem var rekinn í gær eftir aðeins þrjá mánuði í starfi.

Marsch var látinn fara frá Leeds mánudaginn 6. febrúar og allt bendir til þess að Bandaríkjamaðurinn verði ekki lengi atvinnulaus.

Hann hefur verk að vinna hjá Southampton enda er liðið í tuttugasta og neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins fimmtán stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×