Enski boltinn

Vondur VAR-dagur í gær: Tvenn mistök sem kostuðu stig

Smári Jökull Jónsson skrifar
Mikel Arteta þjálfari Arsenal ræðir við dómarana eftir leikinn í gær.
Mikel Arteta þjálfari Arsenal ræðir við dómarana eftir leikinn í gær. Vísir/Getty

VAR-dómarar gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni áttu ekki góðan dag því tvenn mistök voru gerð sem kostuðu lið stig. Þá eru margir á því að Chelsea hefði átt að fá vítaspyrnu í leik sínum gegn West Ham.

Myndbandsdómgæsla í ensku úrvalsdeildinni hefur oftar en ekki skapað mikla umræðu enda kerfið síður en svo óskeikult. Þetta á ekki síst við um gærdaginn því nú komið í ljós að myndbandsdómarar gerðu tvenn mistök í leikjum gærdagsins sem gætu reynst dýrkeypt.

Arsenal hefur leikið frábærlega á tímabilinu og situr í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið gerði jafntefli gegn Brentford í gær en jöfnunarmark Brentford var umdeilt og hefði ekki átt að standa.

Christian Nörgaard var rangstæður þegar hann fékk boltann áður en hann sendi fyrir á Ivan Toney sem skoraði auðveldlega. VAR-kannaði hins vegar aldrei hvort Nörgaard var rangstæður þrátt fyrir að hafa tekið sér drjúgan tíma í að skoða markið.

Þetta kemur fram í grein fyrrum dómarans Chris Foy í Daily Mail. Hann segir að um mannleg mistök sé að ræða en VAR athugaði ýmis atriði í aðdraganda marksins.

„Í aðdraganda marksins er Christian Nörgaard, sem sendir boltann til Toney, rangstæður. Sannleikurinn er sá að VAR athugaði það aldrei með því að teikna rangstöðulínur. Línan var einfaldlega aldrei teiknuð og það eru mannleg mistök,“ skrifar Chris Foy í Daily Mail en hann starfar þar sem sérfræðingur. 

Löglegt mark tekið af Brighton

Mistökin í leik Arsenal og Brentford voru hins vegar ekki þau einu sem VAR-gerði í gær. Í leik Crystal Palace og Brighton, sem lauk með 1-1 jafntefli, skoraði Pervis Estupinan mark sem dæmt var af vegna rangstöðu.

Þar var John Brooks í VAR-herberginu og teiknaði hann rangstöðulínuna frá röngum varnarmanni. Brooks miðaði línuna við varnarmanninn James Tomkins en hann var ekki aftasti varnarmaður Palace. Marc Guehi var aftar og hefði spilað Estupinan réttstæðan en það fór framhjá Brooks. 

Pervis Estupinan fer framhjá Michael Olise í leiknum í gær.Vísir/Getty

Þá átti sér einnig stað umdeilt atvik í leik Chelsea og West Ham þar sem Tomas Soucek, leikmaður West Ham, fékk boltann augljóslega í höndina þegar Connor Gallagher skaut að marki. Að flestra mati hefði Chelsea átt að fá vítaspyrnu en þeim leik leik einnig með jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×