Juventus var án sigurs í seinustu þremur deildarleikjum sínum þar sem liðið hafði tapað tveimur og gert eitt jafntefli.
Dusan Vlahovic kom gestunum yfir með marki á vítapunktinum áður en Serbinn lagði upp annað mark liðsins fyrir Filip Kostic stuttu fyrir hálfleik. Staðan var því 2-0, Juventus í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Vlahovic var þó ekki hættur því hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark Juventus strax á annarri mínútu síðari hálfleiks og þar við sat.
Niðurstaðan því öruggur 3-0 sigur Juventus sem nú er með 26 stig ítíunda sæti deildarinnar eftir 21 leik, fimm stigum meira en Salernitana sem situr í 16. sæti.