Conte hringdi í Kane frá Ítalíu eftir að hann bætti markametið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. febrúar 2023 16:31 Harry Kane talar við Antonio Conte í síma. getty/Tottenham Hotspur FC Antonio Conte hringdi beint í Harry Kane eftir sigur Tottenham á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Kane skoraði eina mark leiksins og varð í leiðinni markahæstur í sögu Spurs.
Kane kom boltanum í netið á 15. mínútu eftir sendingu frá Pierre-Emilie Højbjerg. Þetta var hans 267. mark fyrir Tottenham og bætti þar með markamet Jimmys Greaves fyrir félagið. Conte gat ekki verið á hliðarlínunni á Tottenham leikvanginum í gær þar sem hann er heima á Ítalíu að jafna sig eftir að hafa gengist undir aðgerð þar sem gallblaðran var fjarlægð úr honum. Hann fylgdist samt að sjálfsögðu með leiknum og var ekki lengi að hringja í Kane eftir hann. „Þú gerir mig stoltan,“ heyrðist Conte segja við Kane sem fékk sér sæti í búningsklefanum þegar hann tók við símtalinu frá stjóranum sínum. Eftir sigurinn er Spurs aðeins einu stigi frá Meistaradeildarsæti. Næsti leikur liðsins er gegn Leicester City á laugardaginn. Kane bætti ekki bara markamet Tottenham í leiknum í gær heldur varð hann einnig aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora tvö hundruð mörk í ensku úrvalsdeildinni. Hinir eru Alan Shearer (260) og Wayne Rooney (208).
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Fleiri fréttir Nottingham Forest - Manchester City | Mæta City-menn þungir til leiks? Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjá meira