D-deildarlið Stevenage lagði úrvalsdeildarlið Aston Villa í gær en Oxford þyrfti að draga enn stærri kanínu upp úr hatti í kvöld gegn besta liði Englands, Arsenal.
Staðan var hins vegar markalaus í hálfleik og enn sá möguleiki til staðar að Oxford væri á leiðinni í næstu umferð. Sá möguleiki dó í síðari hálfleik þegar Eddie Nketiah skoraði tvívegis og Mohamed Elneny einu sinni.
Lokatölur 3-0 Arsenal í vil og Skytturnar komnar í fjórðu umferð FA bikarsins.