Manchester United fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í fjórðu umferð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Manchester United er á leið í fjórðu umferð FA-bikarsins.
Manchester United er á leið í fjórðu umferð FA-bikarsins. Matthew Ashton - AMA/Getty Images

Manchester United varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í fjórðu umferð FA-bikarsins er liðið vann 3-1 sigur gegn Everton í úrvalsdeildarslag.

Gengi Everton hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarið og fyrir leik kvöldsins var liðið án sigurs í seinustu sjö leikjum í öllum keppnum ef frá eru taldir tveir æfingaleikir.

Útlitið var því ekki gott fyrir gestina frá Liverpool þegar Antony kom heimamönnum í forystu strax á fjórðu mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Marcus Rashford.

Conor Coady jafnaði þó metin fyrir gestina átta mínútum síðar eftir afar klaufaleg mistök hjá David De Gea í marki United og staðan var því 1-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Áðurnefndur Conor Coady breyttist svo úr hetju í skúrk þegar hann varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net snemma í síðari hálfleik og áður en Marcus Rashford gulltryggði sigurinn með marki af vítapunktinum í uppbótartíma.

Niðurstaðan því 3-1 sigur United sem er á leið í fjórðu umferð FA-bikarsins, en Everton situr eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira