Slæm byrjun á árinu hjá lærisveinum Conte

Smári Jökull Jónsson skrifar
Douglas Luiz skorar hér seinna mark Aston Villa gegn Tottenham í dag.
Douglas Luiz skorar hér seinna mark Aston Villa gegn Tottenham í dag. Vísir/Getty

Aston Villa gerði frábæra ferð til Lundúna í dag þegar þeir lögðu Tottenham á útivelli í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar á nýju ári. Lokatölur 2-0 og lærisveinar Antonio Conte ná því ekki að lyfta sér upp í fjórða sæti deildarinnar á ný.

Það var enginn Dejan Kulusevski í liði Tottenham í dag en hann er frá vegna meiðsla aftan í læri. Þá vantar enn Rodrigo Bentancur og Richarlison í lið Spurs sem var í fimmta sæti deildarinnar fyrir leikinn en gat farið upp í það fjórða með sigri.

Leikurinn var rólegur og markalaus í fyrri hálfleik en Harry Kane átti reyndar skalla sem bjargað var á marklínu.

Í upphafi síðari hálfleiks kom svo Emiliano Buendia Aston Villa yfir með marki sem kom eftir slæm mistök Hugo Lloris í marki Tottenham. Hann missti skot Douglas Luiz frá sér til Ollie Watkins sem gerði vel í að finna Buendia í teignum. Argentínumaðurinn kláraði færið vel og gestirnir komnir í forystuna.

Tottenham sýndi lítil gæði í sínum leik og eftir að Luiz kom Aston Villa í 2-0 á 73.mínútu voru heimamenn aldrei sérstaklega líklegir til að minnka muninn.

Lokatölur 2-0 og Aston Villla tekur þrjú stig með sér heim til Birmingham.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira