Menning

Katrín til­nefnd til bók­mennta­verð­launa

Jakob Bjarnar skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er meðal þeirra sem tilnefndir eru til bókmenntaverðlauna, fyrir glæpasöguna Reykjavík sem hún skrifaði ásamt Ragnari Jónassyni. Um er að ræða frumraun Katrínar á þessu sviði.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er meðal þeirra sem tilnefndir eru til bókmenntaverðlauna, fyrir glæpasöguna Reykjavík sem hún skrifaði ásamt Ragnari Jónassyni. Um er að ræða frumraun Katrínar á þessu sviði. vísir/vilhelm

Einskonar samruni Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 varð þegar tilnefningar voru kynntar nú rétt í þessu á Kjarvalsstöðum. Athygli vekur að meðal hinna tilnefndu er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrir frumraun sína sviði glæpasagnagerðar.

Hér neðar má sjá hverjir eru tilnefndir, í fjórum flokkum því nú hafa auk fagurbókmennta, fræðibóka og barnabóka glæpasögum verið bætt við – eftir krókaleiðum þó. Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. En flokkun skáldverka hefur löngum verið vandkvæðum bundin.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra ávarpar samkomuna á Kjarvalsstöðum nú fyrir stundu.aðsend

Undanfarin ár hafa glæpasögurnar verið vandræðagripur í þessu samhengi, þær hafa síðustu tuttugu árin eða svo verið allsráðandi á bóksölulistum en eins og hvítir hrafnar meðal tilnefndra þó þess finnist dæmi. Líkt og hinar fyrirferðarmiklu glæpasögur þyki ekki nógu fínar í samkvæmið. Á tímum þegar heitar rökræður um hámenningu/lágmenningu eiga ekki lengur upp á pallborðið hafa bókaútgefendur viljað brúa þetta bil og telja sig nú hafa fundið leið til þess.

Þetta er í 34. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna. Í tilkynningu segir að Félag íslenskra bókaútgefenda hafi fyrr á þessu ári gert samkomulag við Íslenska glæpafélagið um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins.

Formenn dómnefndanna fjögurra, Guðrún Steinþórsdóttir, Kamilla Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir og Skúli Pálsson munu svo ásamt forsetaskipuðum formanni, Gísla Sigurðssyni velja eina bók úr hverjum flokki. Höfundar þeirra hreppa verðlaunin sem afhent verða um mánaðarmótin janúar/febrúar á nýju ári. Verðlaunaupphæð sem er ein milljón króna fyrir hvert verk. Félag íslenskra bókaútgefenda kostar verðlaunin.


Höfundar tilnefndir í flokki skáldverka

Auður Ava Ólafsdóttir

Eden

Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Grípandi samtímasaga um lífið, áskoranir þess en ekki síður fegurð hversdagsleikans. Verk sem ávarpar mikilvægi þess að rækta nærumhverfi sitt á sama tíma og huga þarf að náunganum. Höfundur fangar grósku mannlegs eðlis af einstakri næmni. Sagan endurspeglar á vandaðan hátt mismunandi kima samfélagsins og mótbyr daglegs lífs. Frásögn sem vekur hughrif og samkennd lesandans en skilur jafnframt eftir áleitnar spurningar.

Dagur Hjartarson

Ljósagangur

Útgefandi: JPV útgáfa

Höfundur nær á einstakan hátt að skapa verk sveipað eiginleikum ljóðs og skáldsögu. Í reykvískum veruleika fléttast lögmál eðlisfræðinnar og ástarinnar saman á óvenjulegan hátt þar sem lesandinn hittir fyrir ólíklegar hetjur og skúrka. Spennan rís taktfast með framvindu sögunnar og heldur lesandanum hugföngnum og fullum eftirvæntingar. Sagan er frumleg, spennandi og í takt við stílbrögð ljóðlistarinnar skilur hún eftir rými til hugleiðinga.

Kristín Eiríksdóttir

Tól

Útgefandi: JPV útgáfa

Áhrifamikið samtímaverk um napran raunveruleika sem mörgum er hulinn. Framsetningin er frumleg og tekst að vera nærgætin en stuðandi á sama tíma. Lesanda er gefin innsýn í breyskleika einstaklingsins í samfélagi sem oft er vanbúið til þess að bregðast við. Án þess að setja sig í dómarasætið nær höfundur að varpa fram spurningum sem skilja mikið eftir sig. Marglaga verk sem lætur engan ósnortinn.

Pedro Gunnlaugur Garcia

Lungu

Útgefandi: Bjartur

Töfrandi og vel fléttað verk sem teygir anga sína vítt og breitt í tíma; fullt af frásagnargleði og fjölskrúðugum persónum. Sagan rýnir í samfélagið á frumlegan hátt þar sem framvinda verksins og afdrif persóna kemur sífellt á óvart. Höfundur heldur vel á þræðinum í ættarsögu sem tekst á við mismunandi viðhorf kynslóða til lífsins og áskorana þess. Verk sem spyr áleitinna spurninga og dvelur lengi hjá lesandanum.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Hamingja þessa heims: Riddarasaga

Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Höfundur fetar nýja slóð frá fyrri verkum sínum og freistar þess að fylla upp í tímabil Íslandssögunnar sem lítið er vitað um. Vísanir í annála, blæbrigði og stíll skapa metnaðarfullt verk sem skrifað er af virðingu fyrir því liðna, jafnt persónum sem tíðaranda. Það. Það fléttast sömuleiðis saman við málefni samtímans á frumlegan hátt. Úr verður grípandi, heildstætt verk sem fangar athygli lesenda um samfélagið og þróun þess, allt frá fyrri tímum til dagsins í dag.

...

Dómnefnd skipuðu:

Kamilla Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar, Andri Yrkill Valsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.


Höfundar tilnefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis

Árni Snævarr

Ísland Babýlon : Dýrafjarðarmálið og sjálfstæðisbaráttan í nýju ljósi

Útgefandi: Mál og menning

Skemmtileg frásögn um lítt þekktan kafla í sögunni sem sýnir sjálfstæðisbaráttuna frá nýju sjónarhorni. Höfundur leitast við að setja Ísland í samhengi við byltingasögu Evrópu. Þetta er vandlega unnið verk sem fær lesendur til að endurmeta stöðu Íslands í umheiminum.

Kristín Svava Tómasdóttir

Farsótt : Hundrað ár í Þingholtsstræti 25

Útgefandi: Sögufélag

Vandað verk sem veitir innsýn í þróun heilbrigðis- og velferðarmála á Íslandi. Sagan er vel skrifuð, út frá sjónarhorni húss sem gegndi ólíkum en mikilvægum hlutverkum í þróun nútíma samfélags. Margar eftirminnilegar persónur úr öllum þjóðfélagshópum koma við sögu og ríkulegt myndefni styður vel við frásögnina. Falleg og fróðleg bók.

Ragnar Stefánsson

Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta

Útgefandi: Skrudda

Stórfróðlegt yfirlitsrit um jarðskjálfta sem lærðir og leikir munu hafa gagn og gaman af. Hér birtist afrakstur áratuga rannsókna eftir einn af okkar helstu sérfræðingum um efnið og er hann bjartsýnn á að unnt verði að segja fyrir um jarðskjálfta. Með vönduðum texta og lýsandi skýringarmyndum auðveldar höfundur almenningi skilning á jarðskjálftum.

Stefán Ólafsson

Baráttan um bjargirnar : Stjórnmál og stéttabarátta í mótun íslensks samfélags

Útgefandi: Háskólaútgáfan

Í bókinni greinir höfundur efnahagslíf, völd og stjórnmál á Íslandi með vandlega rökstuddum málflutningi. Greiningin byggir á umfangsmiklum gögnum sem sett eru fram í skýrum og lýsandi myndritum þar sem þróun á íslensku samfélagi er sett í alþjóðlegt samhengi. Slíkt rit er nauðsynlegt fyrir stjórnmálaumræðu á Íslandi.

Þorsteinn Gunnarsson

Nesstofa við Seltjörn : Saga hússins, endurreisn og byggingarlist

Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands

Hús okkar fyrsta landlæknis, sem byggt var á árunum 1761-1767 á sér merkilega sögu. Ritið á erindi til allra sem er umhugað um húsverndun og varðveislu menningararfsins. Líkt og við byggingu og endurgerð Nesstofu hefur höfundur verksins nostrað við hvert smáatriði. Með vandaðri framsetningu mynda lesendur sterk tengsl við húsið, íbúa þess, starfsemi og sögu.

...

Dómnefnd skipuðu:

Skúli Pálsson, formaður dómnefndar, Margrét Auðunsdóttir og Sara Hrund Helgudóttir.


Höfundar tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka

Arndís Þórarinsdóttir

Kollhnís

Útgefandi: Mál og menning

Áhugaverð, þörf og marglaga saga. Aðalpersónan tekst á við flóknar áskoranir og lesandinn er vakinn til umhugsunar um mikilvæg málefni á borð við einhverfu, einelti og ósætti innan fjölskyldu. Textinn flæðir mjög vel, húmorinn er sjaldnast langt undan og rödd sögumannsins skýr og ákveðin þótt hann lesi ekki alltaf rétt í aðstæður.

Elísabet Thoroddsen

Allt er svart í myrkrinu

Útgefandi: Bókabeitan

Vel skrifuð frásögn sem fjallar um hinsegin ástir, dulræn öfl, andaglas og drauga. Atburðarásin er spennandi og söguþráðurinn úthugsaður. Persónur þurfa að takast á við flókin verkefni en í því skyni er mikilvægt að þau öðlist skilning á fortíðinni, vinni saman og treysti á sjálfan sig. Sagan er glæsileg frumraun höfundar.

Eiríkur Örn Norðdahl og Elías Rúni, myndhöfundur

Frankensleikir

Útgefandi: Mál og menning

Áhugaverð og nýstárleg saga sem sýnir jólasveinana í nýju og óvæntu ljósi. Persónusköpunin er forvitnileg en við sögu koma uppátækjasamir krakkar, kassalaga foreldrar og niðurbútaðir jólasveinar. Í verkinu fléttast listavel saman kímni, fantasía og hrollvekja þannig að úr verður frásögn sem er allt í senn fyndin, óhugnanleg og grípandi.

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Héragerði

Útgefandi: Salka

Kostuleg saga þar sem hversdagurinn er gerður að ævintýri. Með gamansemi og næmni fyrir mannlegum tilfinningum er varpað ljósi á flókin fjölskyldubönd, vandræðalegar uppákomur og ríkulega sköpunarhæfni barna. Vandaðar myndlýsingar styðja vel við frásögnina og saman mynda þau listræn heild sem höfðar til lesenda á öllum aldri.

Sigrún Eldjárn

Ófreskjan í mýrinni

Útgefandi: Mál og menning

Stórskemmtileg frásögn sem markast af spennu, dulúð og kátínu. Unnið er á frumlegan hátt með íslenska þjóðtrú. Textinn vísar jafnt í fortíð og nútíð, heimsbókmenntir og dægurmenningu þannig að úr verður snjöll og velheppnuð blanda. Ríkulegar og fallegar myndlýsingar auðga söguna og sveipa hana töfraljóma.

...

Dómnefnd skipuðu:

Guðrún Steinþórsdóttir, formaður dómnefndar, Gunnar Björn Melsted og Helga Ósk Hreinsdóttir.


Höfundar tilnefndir til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans

Eva Björg Ægisdóttir

Strákar sem meiða

Útgefandi: Veröld

Áhugaverð sakamála saga sem tekur á ljótum samfélagslegum vandamálum. Hefndin ræður ríkjum þegar draugur fortíðar bankar upp á. Höfundur skapar raunsæja mynd þar sem auðvelt er að tengjast persónum og atburðum.

Lilja Sigurðardóttir

Drepsvart hraun

Útgefandi: JPV útgáfa

Æsispennandi og skemmtileg saga sem heldur lesandanum í gíslingu. Höfundur dansar fína línu á milli raunveruleikans, vísindaskáldskapar og spennusögu.

Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

Reykjavík

Útgefandi: Veröld

Spennandi söguleg glæpasaga með óvæntum útspilum. Flæði bókarinnar er gott og samstarf höfundanna gengur mjög vel upp.

Skúli Sigurðsson

Stóri bróðir

Útgefandi: Drápa

Ný rödd hefur kveðið sér hljóðs í heimi íslenskra glæpasagna og það af fullum krafti. Margslungin bók þar sem fjölmargar sögur fléttast saman frá ólíkum sjónarhornum. Bókin er raunsæ og tekur á málefnum sem hafa verið mikið í umræðunni.

Stefán Máni

Hungur

Útgefandi: Sögur útgáfa

Hrottaleg glæpasaga sem fær lesandann til að staldra við og hugleiða hvort hann eigi að lesa áfram. Breyskleikar og áskoranir sögupersóna tvinnast saman við spennandi söguþráðinn.

...

Dómnefnd skipuðu:

Sigríður Kristjánsdóttir, formaður dómnefndar, Áslaug Óttarsdóttir og Einar Eysteinsson.


Tengdar fréttir

Forsætisráðherra sækir að Arnaldi

Fyrsti bóksölulistinn fyrir árið 2022 lítur nú dagsins ljós. Nöfnin á toppi lista eru kunnugleg nema einn nýliði blandar sér í hópinn: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra velgir Arnaldi undir uggum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×