Menning

Forsætisráðherra sækir að Arnaldi

Jakob Bjarnar skrifar
Kunnugleg nöfn höfunda eru á listum yfir mest seldu bækurnar. Þó er þar einn nýgræðingur sem hér má sjá milli þeirra metsöluhöfunda Arnaldar Indriðasonar og Ragnars Jónassonar, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra blandar sér í slaginn. (Myndin er samsett.)
Kunnugleg nöfn höfunda eru á listum yfir mest seldu bækurnar. Þó er þar einn nýgræðingur sem hér má sjá milli þeirra metsöluhöfunda Arnaldar Indriðasonar og Ragnars Jónassonar, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra blandar sér í slaginn. (Myndin er samsett.) vísir/vilhelm

Fyrsti bóksölulistinn fyrir árið 2022 lítur nú dagsins ljós. Nöfnin á toppi lista eru kunnugleg nema einn nýliði blandar sér í hópinn: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra velgir Arnaldi undir uggum.

„Við birtum nú skáldverkalistann fyrst enda útgáfan í þeim flokki alveg sér á parti í ár og spennustig útgefenda og höfunda nánast á suðupunkti og samkeppnin mikil. Það kemur þó ekki mikið á óvart, þegar litið er á listann, Arnaldur Indriðason situr þar feitur á fleti í fyrsta sæti með bók sína, Kyrrþey. Honum tekst líka, í þessari fyrstu atrennu á listanum að koma sér á topp listans sem telur mest bækur ársins frá áramótum,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda – Fibut.

Glæpasögurnar frekar til fjörsins

Ekkert nýtt er að Arnaldur sé á toppi sölulistans. Né heldur að Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir fylgi í humátt þar á eftir. Glæpasögurnar virðast ætla að halda sinni stöðu sem vinsælasta bókmenntagreinin meðal bókaþjóðarinnar. Og Ólafur Jóhann Ólafsson á sinn trygga lesendahóp. Nýtt er hins vegar að Katrín Jakobsdóttir blandi sér í hóp þeirra höfunda sem eru að selja mest af sínum bókum en hún er meðhöfundur Ragnars, eins og fram hefur komið.

Bryndís Loftsdóttir, sérfræðingur Vísis í bóksölunni.vísir/vilhelm

„Fjórar af tíu mest seldu skáldverkum landsins, 1.-27. nóvember eru glæpasögur eða 40 prósent. Þar sem þær raða sér nær undantekningarlaust í efstu sætin má ætla að um helmingur veltu íslenskra skáldverka komi frá glæpasagnahöfundum,“ segir Bryndís, sérlegur sérfræðingur Vísis í bóksölu og bókmenntasmekk þjóðarinnar.

„Það er líka gaman að segja frá því að árið 1992, fyrir 30 árum síðan, voru kynntar 20 nýjar íslenskar skáldsögur í Bókatíðindum. Það var nú öll stærðin á bókaflóðinu þá. Í ár eru frumútgefnar glæpasögur hins vegar um 20 talsins og önnur ný íslensk skáldverk rúmlega 50!“

Birgitta drottning barnabókanna

Ef frá er talin Katrín eru ekki mörg ný nöfn í hópi þeirra höfunda sem gera sig gildandi á bóksölulistunum. Óttar Sveinsson er í fyrsta sæti á ævisagna- og fræðibókalistans eins og svo oft áður með 29. Útkallsbók sína. Bryndís segir að á listanum þeim megi finna afskaplega fjölbreytt úrval bóka.

„Það kemur kannski mest á óvart hversu lítið áberandi ævisögurnar eru. Guðni Ágústsson er með frásagnir úr Flóanum, Ólafur Ragnar Grímsson opnar bréfasafn fjölskyldunnar og segir frá móður sinni og átakanlegri baráttu hennar við berkla. Fyrrverandi Seðlabankastjóri, Jóhannes Nordal, á svo í raun einu hefðbundnu ævisöguna á listanum, magnaður doðrantur nánast aldarsaga manns og þjóðar sem fengur er að,“ segir Bryndís og rýnir í listana.

Og sé litið til barnabókanna þá leggur Birgitta Haukdal, poppstjarnan sívinsæla, listann nánast undir sig. „Já, það er ekki hægt að segja annað en að Birgitta eigi barnabókalistann. Hún á þar bæði fyrsta og annað sæti og fjórar af tíu mest seldu bókunum. Óvenjulegt er að sjá svona margar þýddar bækur á barnabókalistanum, 9 af 20 mest seldu bókunum eru þýddar eða 45 prósent listans er Íslandsvinurinn David Walliams áberandi með tvo titla á listanum eins og reyndar líka Bjarni Fritzson. Báðir teljast þeir líklegir til frekari ávinninga.“


Bóksölulistinn, mest seldu bækurnar 1. - 27. nóv

Skáldverk

1. Kyrrþey — Arnaldur Indriðason

2. Reykjavík glæpasaga — Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

3. Játning — Ólafur Jóhann Ólafsson

4. Gættu þinna handa — Yrsa Sigurðardóttir

5. Eden — Auður Ava Ólafsdóttir

6. Saknaðarilmur — Elísabet Jökulsdóttir

7. Hungur — Stefán Máni

8. Guli kafbáturinn — Jón Kalman Stefánsson

9. Veðurteppt um jólin — Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir

10. Hamingja þessa heims - Riddarasaga — Sigríður Hagalín Björnsdóttir

11. Strákar sem meiða — Eva Björg Ægisdóttir

12. Jól í Litlu bókabúðinni — Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir

13. Útsýni — Guðrún Eva Mínervudóttir

14. Tugthúsið — Haukur Már Helgason

15. Opið haf — Einar Kárason

16. Drepsvart hraun — Lilja Sigurðardóttir

17. Tól — Kristín Eiríksdóttir

18. Gratíana — Benný Sif Ísleifsdóttir

19. Tættir þættir — Þórarinn Eldjárn

20. Stundum verða stökur til — Hjálmar Jónsson


Ævisögur, fræði- og handbækur

1. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! — Óttar Sveinsson

2. Guðni – Flói bernsku minnar — Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson

3. Húðbókin — Lára G. Sigurðardóttir og Sólveig Eiríksdóttir, myndh. Hildur Ársælsdóttir

4. Tarot-bókin - Handbók og falleg tarot-spil — Claire Goodchild, þýð. Hafsteinn Thorarensen

5. Keltar – áhrif á íslenska tungu og menningu — Þorvaldur Friðriksson

6. Prjónað á börnin – af enn meiri ást — Lene Holme Samsøe, myndh. Katrine Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsd. og Guðrún B. Þórsd.

7. Glaðasti hundur í heimi - Biblía hundaeigandans — Heiðrún Villa

8. Bréfin hennar mömmu — Ólafur Ragnar Grímsson

9. Á sporbaug - Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar — Anna Sigríður Þráinsdóttir, Myndh. Elín Elísabet Einarsdóttir

10. Sjöl og teppi – eins báðum megin — Auður Björt Skúladóttir, myndh. Auður Björt Skúladóttir og Christine Einarsson

11. Lokakeppni HM í Katar 2022 - HM bókin — Kevin Pettman, þýð. Ásmundur Helgason

12. Bakað meira Með Elenoru Rós — Elenora Rós Georgesdóttir

13. Ameríska goðsögnin - Saga Harley-Davidson mótorhjóla á Íslandi — Njáll Gunnlaugsson

14. Lifað með öldinni — Jóhannes Nordal

15. Hetjurnar á HM — Illugi Jökulsson

16. Allt í blóma - Pottablómarækt við íslenskar aðstæður — Hafsteinn Hafliðason

17. Fimmaurabrandarar 4 — Endursögn: Fimmaurabrandara- fjelagið

18. Hvað ef? Róm hefði ekki fallið, Hitler hefði unnið… — Valur Gunnarsson

19. Pabbabrandarar — Þorkell Guðmundsson

20. Á sögustöðum — Helgi Þorláksson


Barna- og unglingabækur

1. Hrekkjavaka með Láru — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

2. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian

3. Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi — Bjarni Fritzson

4. Lára fer í útilegu — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

5. Amma glæpon enn á ferð — David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

6. Jólaföndur - rauð — Höfundar og þýðanda ekki getið

7. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga — Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring

8. Salka - Tímaflakkið — Bjarni Fritzson

9. Lára fer á skíði — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

10. Fagurt galaði fuglinn sá — Helgi Jónsson og Anna M. Marinósdóttir, myndh. Jón B. Hlíðberg

11. Laddi - Snjókorn falla, skemmtilegustu jólalögin — Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason

12. Hva — Höf. David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

13. Benni og Bára — Kathleen Mellor og Marjorie Hann, endurs. Vilbergur Júlíusson

14. Bóbó bangsi og jólin - Jólasaga með flipa til að opna! — Hartmut Bieber, þýð. Kolbeinn Þorsteinsson

15. 13 þrautir jólasveinanna - Óveður í aðsigi — Huginn Þór Grétarsson

16. Litlu börnin læra orðin — Rhea Gaughan, þýð. Andri Karel Ásgeirsson

17. Risaeðlugengið - Fjársjóðsleitin — Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer, þýð. Æsa Guðrún Bjarnadóttir og Sverrir Jakobsson

18. Skólaslit — Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates

19. Bíb-bíb! Depill á ferðinni - Bók með hljóðum — Eric Hill, þýð. Jakob F. Ásgeirsson

20. Dagbók Kidda klaufa 16 - Meistarinn —Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson


Bóksölulistinn, mest seldu bækurnar í öllum flokkum 1. - 27. nóv

1. Kyrrþey — Arnaldur Indriðason

2. Reykjavík glæpasaga — Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

3. Játning — Ólafur Jóhann Ólafsson

4. Gættu þinna handa — Yrsa Sigurðardóttir

5. Hrekkjavaka með Láru — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

6. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian

7. Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi — Bjarni Fritzson

8. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! — Óttar Sveinsson

9. Lára fer í útilegu — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

10. Amma glæpon enn á ferð — David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

11. Jólaföndur - rauð — Höfundar og þýðanda ekki getið

12. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga — Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring

13. Eden — Auður Ava Ólafsdóttir

14. Salka - Tímaflakkið — Bjarni Fritzson

15. Saknaðarilmur — Elísabet Jökulsdóttir

16. Lára fer á skíði — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

17. Hungur — Stefán Máni

18. Fagurt galaði fuglinn sá — Helgi Jónsson og Anna M. Marinósdóttir, myndh. Jón B. Hlíðberg

19. Laddi - Snjókorn falla, skemmtilegustu jólalögin — Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason

20. Hva — Höf. David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson


Bóksölulistinn, mest seldu bækurnar frá áramótum, 1. janúar til 27. nóvember

1. Kyrrþey — Arnaldur Indriðason

2. Reykjavík glæpasaga — Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

3. Hrekkjavaka með Láru — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

4. Hanni granni dansari — Gunnar Helgason

5. Natríumklóríð — Jussi Adler-Olsen, þýð. Jón St. Kristjánsson

6. Leyndarmálið — Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal

7. Játning — Ólafur Jóhann Ólafsson

8. Liðin tíð — Lee Child, þýð. Bjarni Gunnarsson

9. Gættu þinna handa — Yrsa Sigurðardóttir

10. Hva — Höf. David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

11. Skólaslit — Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates

12. Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi — Bjarni Fritzson

13. 500 mílur frá mér til þín — Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir

14. Sumar í strandhúsinu — Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir

15. Krossgátur Morgunblaðið - nr. 10 — Höfunda ekki getið

16. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa — Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian

17. Sæskrímsli — Ævar Þór Benediktsson, myndh. Evana Kisa

18. Dagbók Kidda klaufa 16 - Meistarinn — Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson

19. Handbók fyrir ofurhetjur Sjöundi hluti: Endurheimt — Elias Vahlund, Myndh. Agnes Vahlund, þýð. Ingunn Snædal

20. Þessu lýkur hér — Colleen Hoover, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×