Bíó og sjónvarp

Fyrsta sýnis­hornið úr kvik­myndinni Napóleons­skjölin

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá tökustað á Napóleonsskjölunum.
Frá tökustað á Napóleonsskjölunum. Juliette Rowland

Lífið á Vísi frumsýnir í dag fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin. Myndin er byggð á samnefndri metsölubók eftir Arnald Indriðason og verður frumsýnd í lok janúar á næsta ári.

Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og er nú loks komið að því að birta fyrsta sýnishornið úr myndinni, sem gefur smjörþefinn af því sem áhorfendur eiga von á. Leikstjóri myndarinnar er Óskar Þór Axelsson en fyrri myndir hans eru Svartur á Leik og Ég man þig sem báðar nutu mikilla vinsælda.

Með aðalhlutverk fara Vivian Ólafsdóttir (Leynilögga), Jack Fox (Riviera), Iain Glen (Game of Thrones), Ólafur Darri Ólafsson, Adesuwa Oni (The Witcher), Annette Badland (Ted Lasso), Atli Óskar Fjalarsson og Þröstur Leó Gunnarsson.

Sýnishornið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Fyrsta stiklan úr Napóleonsskjölunum

Leyndardómar flugvélaflaksins

Myndin segir frá Kristínu, metnaðarfullum lögfræðingi sem dregst inn í óvænta atburðarás þegar bróðir hennar rambar fram á flugvélaflak úr seinni heimsstyrjöldinni uppi á Vatnajökli. Kristín og háskólaprófesssorinn Simon Rush þurfa á öllu sínu að halda til þess að komast undan valdamiklum aðilum sem svífast einskis til þess að komast yfir leyndardóminn sem flugvélaflakið geymir.

Stilla úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin.Sagafilm

Sagafilm framleiðir myndina í samstarfi við þýska fyrirtækið Splendid Films en Beta Cinema sér um alþjóðlega dreifingu sem hefur farið vel af stað samkvæmt upplýsingum frá Sagafilm. Með dreifingu innanlands fer Samfilm, dreifingarfyrirtæki Sambíóanna, en eins og fyrr segir verður myndin frumsýnd í lok janúar 2023.

Sagafilm er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands og hefur verið í fremstu röð í framleiðslu á leiknu íslensku efni síðustu áratugi. Sagafilm framleiddi kvikmyndarnar Wolka, Víti í Vestmannaeyjum og Bjarnfreðarson en síðustu verkefni Sagafilm hafa verið sjónvarpsþáttaraðirnar Stella Blómkvist 2, Systrabönd og Ráðherrann.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá tökum á myndinni.

Frá tökustað á Napóleonsskjölunum.Juliette Rowland
Frá tökustað á Napóleonsskjölunum.Juliette Rowland
Frá tökustað á NapóleonsskjölunumJuliette Rowland
Frá tökustað á Napóleonsskjölunum.Juliette Rowland

Tengdar fréttir

Gera kvikmynd úr bók Arnaldar

Íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm og hið þýska Splendid Film vinna nú að kvikmyndinni Operation Napoleon. Myndin er byggð á skáldsögu Arnaldar Indriðasonar, Napóleonsskjölunum, sem kom út árið 1999.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×