Fótbolti

Alexandra og stöllur upp að hlið toppliðsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Alexandra lék allan leikinn fyrir Fiorentina í dag.
Alexandra lék allan leikinn fyrir Fiorentina í dag. Emma Simpson - UEFA/UEFA via Getty Images

Alexandra Jóhannsdóttir og stöllur hennar í Fiorentina lyftu sér upp að hlið toppliðs Roma er liðið vann góðan 2-1 sigur gegn Sampdoria í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Alexandra var í byrjunarliði Fiorentina og lék allan leikinn á miðri miðjunni. Það voru þó gestirnir í Sampdoria sem tóku forystuna snemma leiks og staðan var því 0-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Heimakonur jöfnuðu þó metin á 71. mínútu leiksins og aðeins mínútu síðar var liðið búið að taka forystuna. Gestunum tókst ekki að jafna metin á nýjan leik og niðurstaðan varð því 2-1 sigur Fiorentina.

Fiorentina er nú í öðru sæti deildarinnar með 18 stig eftir sjö leiki, jafn mörg og Roma sem trónir á toppnum en með verri markatölu.  Sampdoria situr hins vegar í sjötta sæti deildarinnar með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×