Gallagher hetja Chelsea í dramatískum sigri í frumraun Potter

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hetjan.
Hetjan. vísir/Getty

Graham Potter stýrði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í dag þegar liðið heimsótti Crystal Palace í Lundúnarslag.

Það blés ekki byrlega fyrir Potter því Crystal Palace náði forystunni snemma leiks með marki Odsonne Edouard.

Pierre Emerick Aubameyang leiddi sóknarlínu Chelsea og hann jafnaði metin á 38.mínútu og var staðan jöfn í leikhléi.

Það stefndi allt í jafntefli þangað til á lokamínútu venjulegs leiktíma þegar enski miðjumaðurinn Conor Gallagher skoraði sigurmark fyrir Chelsea en hann sló í gegn sem lánsmaður hjá Crystal Palace í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Lokatölur 1-2 fyrir Chelsea sem er í sjöunda sæti deildarinnar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira