Bíó og sjónvarp

Hannes Þór tryggir sér Húsið eftir Stefán Mána

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stefán Máni og Hannes Þór við undirskriftina.
Stefán Máni og Hannes Þór við undirskriftina.

Framleiðslufyrirtæki Hannesar Þórs Halldórssonar hefur keypt kvikmyndaréttinn að bókinni Húsið eftir Stefán Mána. Spennusagan kom út árið 2012. 

„Stefán Máni er ótrúlega orkumikill rithöfundur sem skrifar myndrænar og kyngimagnaðar bækur. Húsið er dimm og drungaleg saga og ég var ekki búinn að lesa margar blaðsíður þegar ég fann að hér væri efni í góða kvikmynd. Það er auðvitað langt í land ennþá en handritavinnan er komin af stað og vonandi sjáum við Hörð Grímsson á hvíta tjaldinu áður en langt um líður,“ segir Hannes. 

Stefán Máni er ánægður með samkomulagið og hlakkar til að fylgjast með þróuninni. 

„Ég er hrikalega ánægður með þennan samning. Það er tími til kominn að Hörður Grímsson fái njóta sín á hvíta tjaldinu og Hannes Þór er hárréttur maður í verkið. Aðdáendur lögreglumannsins hljóta að gleðjast,“ segir Stefán. 

Ætlar að koma miklu í verk

Framleiðslufyrirtækið Floodlights hefur verið á miklu skriði undanfarin ár en síðan Hannes Þór lagði markmannshanskana á hilluna hefur aukinn kraftur færst í starfsemina. Hannes Þór hefur verið stórtækur á íslenska auglýsingamarkaðnum upp á síðkastið og leikstýrði auk þess fyrir stuttu tveimur herferðum fyrir kínversk stórfyrirtæki sem framleiddar voru hér á landi af Floodlights. 

Leynilögga, fyrsta kvikmynd Hannesar í fullri lengd, var frumsýnd á síðasta ári og gekk afar vel í íslenskum kvikmyndahúsum. Leynilögga vakti óvænta athygli á fjölmörgum kvikmyndahátíðum og hefur fengið mikið lof erlendra gagnrýnenda. Hannes Hlaut meðal annars verðlaun fyrir leikstjórn eins og fjallað var um hér á Vísi

„Það er allt búið að vera á fullu síðan ég flutti heim 2019 og eftir velgengni Leynilöggunnar eru spennandi tímar framundan. Ásamt Húsinu er ég tengdur nokkrum mjög áhugaverðum verkefnum og hugmyndin er að bretta upp ermar og koma miklu í verk næstu árin,“ segir Hannes.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×