Bíó og sjónvarp

Innblásturinn að gamanhrollvekju kom frá vídeoleigu bæjarins

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ungt par, Mira og Pétur, ætla sér að opna gistihús úti á landi á Íslandi. Þau búast við frið og ró en átta sig fljótlega á því að fornir illir djöflar lúra í kjallara hússins og ásækja þau í draumum þeirra. Í kjölfarið fer röð atburða af stað og Pétur fer að glíma við minnisleysi og Mira verpir eggi.
Ungt par, Mira og Pétur, ætla sér að opna gistihús úti á landi á Íslandi. Þau búast við frið og ró en átta sig fljótlega á því að fornir illir djöflar lúra í kjallara hússins og ásækja þau í draumum þeirra. Í kjölfarið fer röð atburða af stað og Pétur fer að glíma við minnisleysi og Mira verpir eggi. It hatched

„Myndin upphefur þessar undarlegu hrollvekjur og B-myndir en í senn gerir grín af minnum hefðarinnar,“ segir leikarinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Bent Kingo Andersen um hrollvekju gamanmyndina It hatched. Myndin verður forsýnd hér á landi í dag.

„Hún gerist í hliðstæðum veruleika kvikmyndanna þar sem fólk sönglar línur sínar í B-mynda hljómfalli og hreyfir sig eins og þau dansi á milli blokkeringa.“

Í stuttu máli fjallar kvikmyndin um Pétur og Miru sem flytja frá erilsamri stórborg í Bandaríkjunum á afskekktan stað á Vestfjörðum í leit að frið og ró. Áform þeirra raskast þó þegar forn vættur gerir vart við sig undir kjallara hússins og Mira verpir eggi.

„Myndin hefur verið í vinnslu síðan 2015 Hugmyndin kom í byrjun 2015 og var handritið skrifað í kjölfarið. Tökur hófust síðan 15. júlí 2015 og stóðu yfir til 2017 en eftir það voru svo auka hljóð- og tónlistarupptökur ásamt eftirvinnslu,“ útskýrir Bent.

Bent Kingo Andersen.Aðsent

Tilvalin fyrir kómíkina

Bent er einn framleiðanda myndarinnar en með aðalhlutverk fara Vivian Ólafsdóttir, Gunnar Kristinsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Þór Tulinius, Björn Jörundur Friðjónsson og Halldór Gylfason.

„Við þekktum vel til verka hjá Vivian en við sáum Gunnar í Albatross og fengum hann í prufu. Okkur fannst þau vera tilvalin í að ná kómíska hluta myndarinnar.“

Myndin hefur fengið mjög góð viðbrögð erlendis og það var tekið mjög vel í hana á hátíðum úti.

„Til að mynda fengum við verðlaun fyrir bestu alþjóðlegu myndina á Midwest Weirdfest og myndin fékk einnig sérstaka umfjöllun á Austin film festival. Einnig hefur gagnrýni verið mjög góð.“

Óvissa eftir Covid-smit

Leikstjóri myndarinnar er Elvar Gunnarsson. Tökur fóru fram í Reykjavík og í Haukadal og á fleiri stöðum á Vesturlandi.

„Elvar fékk innblásturinn frá vídeoleigu bæjarins þar sem hann vann fyrir mörgum árum. Myndin er byggð á myndum sem náðu til hanns á unglingsárunum, þegar hann varð fyrst ástfanginn af bíói. Frá undarlegum listrænum hrollvekjum og B-myndum sem settar eru saman í blender.“

Frá stökustað íslensku kvikmyndarinnar It Hatched.Aðsent

Með Bent og Elvari unnu Vilius Petrikas, Guðfinnur Ýmir Harðarson og Magnús "Móri" Ómarsson.

„Við vorum einnig í samstarfi við Hero productions. Samstarfið gekk alveg rosalega vel. Ég þekkti hann Magnús áður úr kvikmyndaskólanum og hann fékk mig inn í þetta verkefni en svo kynntist ég restinni í gegnum ferlið. Ég hafði í raun unnið áður með Elvari og Guðfinni sem leikari en ég kynntist þeim ekkert af alvöru fyrr en í þessu verkefni. Þetta verkefni var mjög erfitt og krefjandi og það var alveg magnað hvað okkur kom vel saman og urðum góðir vinir líka utan verkefnisins í kjölfarið.“

Það var þó ekkert einfalt að framleiða íslenska kvikmynd í heimsfaraldrinum.

„Það gekk sem betur fer en ástandið var alls ekki að hjálpa okkur og það urðu allskonar tafið vegna þess. Við vorum sem betur fer búin í tökum á þessum tímapunkti en við lentum til dæmis. í því að einn aðili sem var að vinna fyrir okkur erlendis í eftirvinnslu veiktist alvarlega af Covid og fyrirtækinu sem hann vann hjá var var lokað tímabundið á sama tíma útaf faraldrinum. Við vissum í rauninni ekki hvort hann væri á lífi eða ekki þar sem að við náðum engu sambandi út en sem betur fer náði hann heilsunni aftur og gat klárað verkefnið.“

Misstu af hátíðinni

Bent segir að það hafi verið æðislegt að fylgjast með myndinni erlendis en það hafi verið sárt að missa af Austin Film Festival. 

„Það var hins vegar smá skellur að við máttum ekki koma inn í Bandaríkin út af Covid svo við gátum ekki mætt á hátíðina sjálfir en landamærin opnuðu svo aftur einungis örfáum dögum eftir að hátíðinni lauk. Það var líka gaman að vita til þess að myndin var sýnd á opnunarkvöldinu á hátíðinni við hliðina á nýjustu mynd Wes Anderson.“

Myndin verður frumsýnd í Laugarásbíói á föstudag og er hún einnig í sýningu í Bandaríkjunum. 

„Við stefnum svo á að dreifa henni víðar um heiminn og koma henni svo á helstu streymisveitur. Það eru spennandi tímar framundan hjá mér. Ég held áfram að taka að mér einstaka verkefni sem leikari og er einnig með önnur spennandi verkefni á döfinni,“ segir Bent að lokum. 


Tengdar fréttir

Ný ís­lensk hryllings­mynd til­nefnd til verð­launa

Íslenska hryllingsmyndin It Hatched í leikstjórn Elvars Gunnarssonar er tilnefnd til tveggja verðlauna á Austin kvikmyndahátíðinni sem nú fram fer í Texas en kvikmyndin var heimsfrumsýnd þar á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×