Haaland skoraði þrennu í endurkomusigri City

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Erling Braut Haaland elskar að skora.
Erling Braut Haaland elskar að skora. Shaun Botterill/Getty Images

Norðmaðurinn Erling Braut Haaland var sjóðandi heitur er Englandsmeistarar Manchester City komu til baka og unnu 4-2 sigur gegn Crystal Palace eftir að hafa lent 0-2 undir í fyrri hálfleik.

Gestirnir í Crystal Palace tóku forystuna snemma leiks þegar John Stones varð fyrir því óláni að setja boltann í sitt eigið net.

Varnarmaðurinn Joachim Andersen tvöfaldaði svo forystu gestanna eftir tuttugu mínútna leik og staðan því 0-2 þegar flautað var til hálfleiks.

Heimamenn í City mættu þó ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og Bernardo Silva minnkaði muninn á 53. mínútu áður en ERling Haaland jafnaði metin tíu mínútum síðar.

Haaland fullkomnaði svo endurkomu heimamanna með marki á 70. mínútu leiksins áður en hann fullkomnaði þrennu sína tíu mínútum síðar og tryggði liðinu 4-2 sigur.

Manchester City er nú á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með tíu stig eftir fjóra leiki, einu stigi meira en Arsenal sem á einn leik til góða. Crystal Palace situr hins vegar í 14. sæti deildarinnar með fjögur stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira