Tónlist

Var flogið á sína fyrstu Þjóðhátíð sem óvænt atriði

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sverrir Bergmann kemur fram á Þjóðhátíð í ár, meðal annars með hljómsveitinni Albatross.
Sverrir Bergmann kemur fram á Þjóðhátíð í ár, meðal annars með hljómsveitinni Albatross. Stöð 2 Vísir

Sverrir Bergmann fór á sína fyrstu Þjóðhátíð fyrir 21 ári en þá var honum flogið til Vestmannaeyja til að flytja lagið Án þín fyrir brekkugesti. Hann hefur verið reglulegur flytjandi á hátíðinni síðan þá og kemur fram í ár bæði með hljómsveitinni Albatross og FM95Blö.

Þjóðhátíð 2022 fer fram með pompi og prakt í Heimaey í lok júlí í ár. Fjölbreytt flóra íslensks tónlistarfólks mun stíga á svið og skemmta gestum en hátíðin er nú haldin í fyrsta skipti frá árinu 2019. Lífið á Vísi tekur hér púlsinn á tónlistarfólkinu og fær nánari innsýn í atriðið þeirra á Þjóðhátíð.

Hvenær fórst þú fyrst á Þjóðhátíð?

Ég fór fyrst á Þjóðhátíð árið 2001. Þá hafði lagið Án þín verið vinsælt á útvarpsstöðinni FM957 og var ákveðið að fljúga mér og gítarleikaranum, Brynjari Elefsen, til Vestmannaeyja þar sem við tókum lagið sem „surprise“.

Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa hátíð?

Fólkið, hefðin, hvítu tjöldin og heimamenn.

Við hverju mega hátíðargestir búast þegar þú stígur á svið?

Góðum fílíng.

Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt?

Mitt uppáhalds þjóðhátíðarlag er „Þar sem hjartað slær“. 

Ég er svo stoltur að hafa fengið að syngja þetta lag að ég verð að nefna það.

Hvernig ætlarðu að undirbúa þig fyrir stóru stundina?

Við förum í súpúhitting til Hjalla og fjölskyldu. Alveg ómissandi. Og svo auðvitað pelinn hjá Palla í Mörk.


Tengdar fréttir

„Alltaf verið bendlaður við alvöru partý stemningu“

Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Ingi Bauer er maðurinn á bak við lög á borð við Dicks og Upp til hópa. Hann hefur komið fram á hinum ýmsu hátíðum og spilað víðs vegar um landið en hann er meðal atriða á Þjóðhátíð í ár og segist alltaf hafa verið bendlaður við alvöru partý stemningu.

„Ég man varla eftir tónleikunum sökum sjóriðu“

Birgitta Haukdal er ein ástsælasta söngkona okkar Íslendinga og þaulvön því að stíga á svið fyrir framan fjöldann allan af áhorfendum. Fyrir um það bil tuttugu árum síðan spilaði hún á sinni fyrstu Þjóðhátíð með hljómsveitinni Írafár en hún kemur fram í Herjólfsdal í ár, bæði ein og með hljómsveitinni. Blaðamaður tók púlsinn á Birgittu.

„Það er nú ekki flóknara en það“

Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, er með frægari tónlistarmönnum okkar Íslendinga og á marga smelli að baki sér. Ásamt því að vera atvinnu rappari mun hann sinna hlutverki dómara í Idolinu sem fer af stað á Stöð 2 í vetur. Herra Hnetusmjör kemur fram á Þjóðhátíð í ár og segir að hátíðargestir megi búast við skemmtun á heimsmælikvarða.

Þokka­leg veður­spá fyrir Verslunar­manna­helgi

Eftir því sem nær dregur fara línur að skýrast í veðri fyrir verslunarmannahelgina, en margir eru eflaust með augun daglega á veðurkortinu. Eins og spáin lítur út nú á mánudegi má gera ráð fyrir rigningu um allt land á föstudag, en þá gengur lægð yfir landið sem kemur frá suðri og færist til norðausturs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×