Tónlist

Frumsýning á Vísi: Snorri Helgason og Ari Eldjárn sameina krafta sína

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Snorri Helgason var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið Hæ Stína.
Snorri Helgason var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið Hæ Stína. Stilla úr myndbandi

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Snorra Helgasonar, en myndbandið er við glænýtt lag frá Snorra sem ber nafnið Hæ Stína. Uppistandarinn og filmuáhugamaðurinn Ari Eldjárn leikstýrði en blaðamaður tók púlsinn á þeim vinum og fékk að heyra nánar frá.

Hér má sjá tónlistarmyndbandið:

Gömul filmumyndavél

„Við Ari erum gamlir vinir, kynntumst fyrst í gegnum Berg Ebba þegar Sprengjuhöllin var að byrja og svo alltaf meira og meira í gegnum árin,“ segir Snorri og bætir við að konan hans, Saga Garðarsdóttir, og Ari séu einnig mjög góðir vinir. 

„Einhvern tímann haustið 2021 voru þau tvö, Saga og Ari, að fara að vera með uppistand á Hólmavík og ég var fenginn í að vera driver. Á leiðinni var ég að leyfa Ara að heyra röffmix af stöffinu sem ég var að vinna með Daníel Friðriki og þess á meðal var lagið Hæ Stína sem Ari kveikti strax á og stakk upp á að hann gerði myndband við. 

Ari er nefnilega ekki bara gúrme uppistandari heldur líka gamall filmuperri. Hann var alltaf að taka upp og framkalla filmur þegar hann var barn og unglingur en hafði þarna nýverið fest kaup á geggjaðri gamalli filmumyndavél og langaði til að prófa að gera eitthvað á henni.

 Þannig að það var kjörið að hann myndi leikstýra myndbandi við þetta lag.“

Stilla úr myndbandi

Dagur í lífi

Snorri segir ferlið hafa gengið vel fyrir sig og allt verið í góðu flæði við gerð myndbandsins.

„Svo byrjuðum við bara að hittast og leika okkur og gera eiginlega bara eitthvað því allt sem maður tekur upp á þessar vélar lúkkar svo ógeðslega vel að það skiptir nánast engu hvað maður er að horfa á. Svo fór pæling að mótast í kringum þetta myndefni að gera nokkurs konar „A day in the life“ myndband þar sem fylgt er eftir mér að gera einhverja frekar hversdagslega hluti; helli upp á kaffi, fer í stúdíóið mitt að dúllast, göngutúr með sjónum, hitti fjölskylduna mína á listasafni, kíki í Kolaportið og enda svo á að bjóða vinum mínum í hljómsveitinni í mat.“

Stilla úr myndbandi

Marga áratugi í vinnslu

Samkvæmt Ara hafa vélarnar lifað tímana tvo og ólík tímabil mætast í myndbandinu.

„Myndbandið er tekið á tvær gamlar Aaton Super-16 filmuvélar. Önnur var notuð til að taka hluta af Sódómu Reykjavík og hugsanlega myndina Veggfóður líka, þannig það er góð 90’s orka í henni líkt og í öllu í kringum Víðihlíð plöturnar. Anton Smári tökumaður var með okkur í byrjun á ferlinu og tók nokkur vel valin skot. Eitt skotið er tekið af Reyni Oddssyni sem leikstýrði Morðsögu og Hljómamyndinni Umbarumbamba. Það er tekið í sólskálanum hans, með málverkum eftir Líneyju Friðfinnsdóttur í bakgrunni. Svo er eitt skot sem Karl Óskarsson tók 1984 sem fannst á gamalli filmu í ruslagámi í fyrra. 

Þannig það má segja að þetta myndband hafi verið marga áratugi í vinnslu.“
Stilla úr myndbandi

Útgáfutónleikar, vínylplata og annað myndband

Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá Snorra þar sem vínylplata er á leiðinni en ásamt því mega aðdáendur búast við frekara samstarfi hjá honum og Ara.

„Vínyllinn var að koma til landsins og ég er að fara af stað með karolinafund til að selja sem mest beint þaðan og koma á móti framleiðslukostnaði. Eiginlegur útgáfudagur LP plötunnar verður um mánaðamótin, ég stefni svo á útgáfutónleika um miðjan ágúst og annað myndband eftir Ara kemur út um svipað leyti,“ segir Snorri að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×