Tónlist

„Við bjuggum eitthvað til og nú kunna aðrir það“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin FLOTT er á leið á sína fyrstu Þjóðhátíð.
Hljómsveitin FLOTT er á leið á sína fyrstu Þjóðhátíð. Aðsend

Hljómsveitin FLOTT er skipuð fimm tónlistarkonum úr ólíkum áttum tónlistarheimsins, þeim Ragnhildi, Sylvíu, Sólrúnu Mjöll, Eyrúnu og Vigdísi. FLOTT hefur vakið athygli undanfarin misseri, voru sem dæmi með lag í Áramótaskaupinu og skrifuðu í vetur undir samning við Sony. Stelpurnar koma fram á Þjóðhátíð í ár en þetta er í fyrsta skipti sem þær sækja hátíðina.

Þjóðhátíð 2022 fer fram með pompi og prakt í Heimaey í lok júlí í ár. Fjölbreytt flóra íslensks tónlistarfólks mun stíga á svið og skemmta gestum en hátíðin er nú haldin í fyrsta skipti frá árinu 2019. Lífið á Vísi tekur hér púlsinn á tónlistarfólkinu og fær nánari innsýn í atriðið þeirra á Þjóðhátíð.

Hvenær fóruð þið fyrst á Þjóðhátíð?

Þetta er náttúrulega mjög vandræðalegt, en engin okkar hefur farið. 

Það er ekki amalegt að fyrsta skiptið í Dalnum verði á sviði.

Hvað finnst ykkur skemmtilegast við að koma fram?

Það er skemmtilegast að finna fyrir orkunni frá áhorfendum og að við séum að skapa eitthvað saman. Við höldum alltaf að enginn kunni lögin okkar og hvað þá textana því þeir eru alltof langir hjá Vigdísi en svo undanfarið höfum við tekið eftir áhorfendum að syngja með og það er alltaf alveg magnað. Við bjuggum eitthvað til og nú kunna aðrir það.

Það er líka svo gaman að hittast og æfa fyrir svona stóra tónleika og að fá að upplifa svona stór augnablik saman.
Meðlimir FLOTT njóta þess að skapa saman.Aðsend

Við hverju mega hátíðargestir búast þegar þið stígið á svið?

Við leggjum upp úr spilagleði, húmor og stemningu. 

Við tökum okkur ekki mjög alvarlega heldur finnst bara gaman að hafa gaman. Ef það er ekki gaman, þá er yfirleitt leiðinlegt.

Áhorfendur mega svo búast við lögum sem þau hafa heyrt oft, heyrt sjaldan og aldrei heyrt.

Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið ykkar?

Við erum fimm einstaklingar í bandinu með ólíkar skoðanir og smekk en erum margar hverjar gamlar sálir og finnst „Ég veit þú kemur” vera þjóðargersemi. 

Ýmsir halda að textinn sé um ástarsamband en hann sprettur víst úr því þegar Oddgeir og Ási í Bæ, sem unnu almennt einstaklega vel saman, urðu eitthvað ósáttir en Ási rétti svo fram sáttarhönd með þessum fallega texta. Eða það heyrðum við allavega! 

Eyjamenn geta staðfest þetta eða leiðrétt.

Hvernig ætlið þið að undirbúa ykkur fyrir stóru stundina?

Við reynum alltaf að vera búnar að æfa okkur vel og samstilla okkur. Það er ekkert heilagt í rútínu FLOTT en við eigum það reyndar til að verða smá stressaðar og fyllast einhverjum efasemdum af og til um eigið ágæti og tilvist, sérstaklega rétt fyrir gigg. 

En við erum góðar í því að hvetja hvor aðra áfram og náum alltaf að lenda fyrir tónleika og njóta þess að spila saman og gefa af okkur.

Tengdar fréttir

Spila í brúðkaupum þar sem brúðhjónin hafa kynnst á Tjarnarsviðinu undir tónum hljómsveitarinnar

Hljómsveitin Brimnes er þaulvön að koma fram og skemmta fólki en hún spilaði á sinni fyrstu Þjóðhátíð fyrir 19 árum síðan. Allir meðlimir sveitarinnar eru fæddir og uppaldir í Eyjum og segja ekkert í heiminum jafnast á við Þjóðhátíð. Þá er í sérstaklega miklu uppáhaldi hjá þeim að sjá fólk verða ástfangið þegar það dansar saman við þeirra tóna.

„Gleymdum vissulega öllu þegar við mættum á svið“

Hljómsveitin Sprite Zero Klan skaust upp á stjörnuhimininn árið 2017 með laginu Tíkin Mín. Þeir eiga að baki sér ófá öflug danslög og þar á meðal nokkur lög sem eru tileinkuð Þjóðhátíð en Sprite Zero Klan verður einmitt í dalnum í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×