Fótbolti

Dramatík í fyrsta sigri sumarsins hjá KV

Hjörvar Ólafsson skrifar
Selfyssingar eru með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar. 
Selfyssingar eru með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar.  Mynd/Selfoss

Selfoss og Fylkir skildu jöfn þegar liðin mættust í sjöttu umferð Lengjudeildar karla í fótbolta í kvöld. Grindavík og Fjölnir gerðu sömuleiðis jafntefli. KV innbyrti svo sinn fyrsta sigur í spennutrylli á móti Aftureldingu. 

Það voru fjögur mörk og tvö rauð spjöld í viðureign Selfoss og Fylkis. Hrvoje Tokic og Gary John Martin skoruðu mörk Selfoss í leiknum en Nikulás Val Gunnarsson kom Fylki yfir í leiknum og Frosti Brynjólfsson tryggði Árbæingum stig. 

Aron Einarsson fékk að líta rauða spjaldið eftir rúmlega klukkutíma leik og Orri Sveinn Stefánssson var svo sendur í snemmbúna sturtu í uppbótartíma leiksins. 

Selfoss trónir á toppi deildarinnar með 14 stig og Fylkir kemur þar á eftir með sín 11 stig. 

Fjölnir hefur sömuleiðis 11 stig en liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Grindavík í kvöld. Aron Jóhannsson og Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoruðu mörk Grindavikur í leiknum en Guðmundur Þór Júlíusson og Lúkas Logi Heimisson sáu um markaskorunina fyrir Fjölni. 

Grótta og Grindavík hafa hvort um sig 10 stig í fjórða til fimmta sæti deildarinnar. 

KV vann svo langþráðan sigur þegar liðið Aftureldingu í heimsókn á Auto Park í Vesturbænum. 

Björn Axel Guðjónsson kom KV yfir í þeim leik en Ásgeir Ásgeirsson jafnaði fyrir gestina úr Mosfellsbænum þegar skammt var eftir af leiknum. Það var svo Björn Axel sem reyndist hetja KV-manna en hann tryggði liðinu sigurinn á lokaandartökum leiksins. 

Áður hafði Pedro Vazquez, leikmaður Aftureldingar, brennt af vítaspyrnu. Afturelding lék einum leikmanni færi frá því að hálftími um það bil var liðinn af leiknum. 

Elmar Kári Enesson Cogic fékk þá beint rautt spjald fyrir tæklingu. Karl faðir hans, Enes Cogic, aðstoðarþjálfari Aftureldingar, fór sömu leið fyrir mótmæli. 

KV spyrnti sér af botninum með þessum sigri en liðið hefur þrjú stig eftir sex leiki líkt og Afturelding. 

Upplýsingar um úrslit og markaskora eru fengnar frá fotbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×