Liverpool tapaði tveimur stigum í titilbaráttunni

Hjörvar Ólafsson skrifar
Luis Diaz bjargaði stigi fyrir Liverpool í leik liðsins gegn Tottenham Hotspur. Vísir/Getty
Luis Diaz bjargaði stigi fyrir Liverpool í leik liðsins gegn Tottenham Hotspur. Vísir/Getty

Liverpool komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með því að gera 1-1 jafntefli í leik sínum við Tottenham Hotspur á Anfield í dag.

Eftir þessi úrslit eru Liverpool og Manchester City með jafn mörg stig á toppi deildarinnar en Liverpool hefur spilað 35 leik og Manchester City 34.  Liverpool er með einu marki betri markatölu.

Son Heung-min kom Tottenham Hotspur yfir eftir um það bil tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Son batt þá endahnútinn á vel útfærða skyndisókn Tottenham Hotspur. 

Ryan Sessegnon renndi boltanum á suður-kóreska framherjann sem skoraði. 

Þung sókn Liverpool bar svo árangur þegar skot Luis Diaz hafði viðkomu í Rodrigo Bentancur og fór þaðan í markið. 

Manchester City fær Newcastle United í heimsókn á Etihad á morgun og getur endurheimt toppsætið í þeim leik. 

Tottenham Hotspur er hins vegar í harðri baráttu við nágranna sína, Arsenal, um fjórða og síðasta sætið í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. 

Næsta fimmtudag mætast Tottenham Hotspur og Arsenal í slag erkifjendanna en fyrir þann leik er Arsenal með 63 stig og Tottenham Hotspur 62. Skytturnar eiga þar að auki leik til góða á Tottenham Hotspur. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira