Innlent

Biðlisti á námskeið um aðskilnaðarkvíða

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Sigrún Bjarglind Ingólfsdóttir hundaatferlisráðgjafi hjá Hundalífstíl.
Sigrún Bjarglind Ingólfsdóttir hundaatferlisráðgjafi hjá Hundalífstíl. Vísir/Arnar

Biðlisti er hjá hundaþjálfara sem sérhæfir sig í aðskilnaðarkvíða hunda en í verstu tilvikum þarf að gefa hundinum kvíðalyf. Talið er að allt að fjórir af hverjum tíu hundum þjáist af aðskilnaðarkvíða.

Sprenging hefur verið í hundahaldi síðustu ár þar sem margir unnu heima í samkomutakmörkunum. En nú eru breyttir tímar og flestir hafa snúið aftur á vinnustaðinn. 

Snöggar breytingar á samveru milli eiganda og hunds getur hins vegar valdið aðskilnaðarkvíða hjá hundum en talið er að milli 20-40 prósent þeirra þjáist af honum. 

„ Margir eru að skella sér í vinnuna eftir langan tíma heima og fara í fyrsta skipti í einn til þrjá tíma í burtu frá hundinum sínum og það getur verið of mikið til að byrja með. Við þurfum að byrja með einhverjar sekúndur og auka svo tímann smám saman sem við erum í burtu,“ segir Sigrún Bjarglind Ingólfsdóttir hundaatferlisráðgjafi hjá Hundalífstíl.

Mikilvægt sé að byrja sem fyrst að þjálfa hundinn. 

„Ef það eru ungir hvolpar að gera þá svona gægjuleiki eins og við lítil börn. Hvolparnir verða að æfa sig í að skilja að þegar eitthvað hverfur þá kemur það til baka,“ segir Sigrún. 

Sigrún sem hefur sérhæft sig í aðskilnaðarkvíða segir að sífellt fleiri hundaeigendur leiti aðstoðar vegna hans.

Sigrún segir mikilvægt að þjálfa hunda sem fyrst í að vera eina. Alls ekki megi skilja þá skyndilega eftir eina heima án þess að þeir hafi verið þjálfaðir áður.

„Eins og er er biðlisti í slík námskeið og ég er varla byrjuð að auglýsa það er bara svo mikið að gera. Rakkar eru t.d.  í 60% meiri hættu en tíkur á að þjást af aðskilnaðarkvíða en einkenni hans eru til að mynda meira gelt eða væl en svo eru sumir hundar sem þagna alveg.,“ segir hún.

Hún segir að í alvarlegustu tilvikum þurfi að gefa hundunum kvíðalyf.

„Kvíðalyf alveg eins og fyrir fólk er bara mikilvægt tæki til að hjálpa hundum sem eru rosalega kvíðnir,“ segir hún.

Í Bandaríkjunum hefur CBD- fyrir hunda verið auglýst sem lyf gegn kvíða. Sigrún segist hafa heyrt af því.

„Ég mæli hins vegar ekkert sérstaklega með CBD-fyrir hunda því ég hef ekki séð neinar rannsóknir um gagnsemi þessi við kvíða hjá þeim,“ segir hún að lokum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×