Tónlist

Endurgerð af slagara Manu Chao á toppnum

Tinni Sveinsson skrifar
Tónlistarmaðurinn Sofia Kourtesis er frá Perú en býr og starfar í Berlín.
Tónlistarmaðurinn Sofia Kourtesis er frá Perú en býr og starfar í Berlín.

Tónlistarþátturinn PartyZone hefur sett saman lista yfir 30 bestu danstónlistarlög febrúar. Á toppnum trónir endurgerð af þekktu lagi Manu Chao eftir Sofiu Kourtesis, plötusnúð frá Perú.

Til þess að finna listann fyrir febrúar var leitað til plötusnúða bæjarins og helstu lista tónlistarpressunnar skoðaðir.

„Sofia Kourtesis á topplagið í þetta skiptið. Í laginu Estacion Esperanza er hún að vinna snilldarlega með lag frá Manu Chao,“ segir Helgi Már Bjarnason, einn umsjónarmanna PartyZone.

Nýr þáttur af PartyZone fer í loftið hér á Vísi á föstudögum og er hann síðan aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Mixcloud-rás þáttarins.

2022 verður kröftugt dansár

„Þetta er trylltur listi til að starta dansárinu. Það er svo augljóst að fólk þráir að komast óheft og grímulaust á dansgólfið og dansa eins og vindurinn. Það er hægt að heyra það á tónlistinni sem verið er að gefa út. Við spáum því að dansgólfin muni fyllast með tryllingi nú í ár og það af fólki á öllum aldri enda má ekki gleyma því að danskynslóðin er að detta í fimmtugt. Það er eitthvað að fara að gerast næstu mánuði sem verður lengi í minnum haft.“

Klippa: Party Zone listinn fyrir febrúar

Kiasmos í fimmta sæti

Á listanum kennir margra grasa. „Röyksopp eru mættir aftur með geggjað nýtt lag með söngkonunni Alison Goldfrapp. Mjög töff endurhljóðblöndun Masters at Work á Moonshine, þeirra eigin klassík, er sömuleiðis alger gargandi snilld. Honey Dijon, Booka Shade, Disclosure eru sömuleiðis að gera gott mót á lista mánaðrins. Allskonar klúbba stöff og Teknó þarna sömuleiðis. Að lokum má nefna að Ólafur Arnalds og félagar í KIASMOS eru í fimmta sætinu með glænýtt remix," segir Helgi Már.

Klassík frá Daft Punk

PartyZone listaþátturinn hefst alltaf með múmíu kvöldsins og reka sumir eflaust upp stór augu yfir aldrinum á henni.

„Topplagið á PartyZone listanum í febrúar 1997 var þessi rosalegi slagari frá Daft Punk, Burnin, sem átti eftir að bomba dansgólfin næstu árin,“ segir Helgi Már.


Tengdar fréttir

Hinn sænski DJ Seinfeld með lag ársins

Það er árlegur viðburður að umsjónarmenn danstónlistarþáttarins PartyZone hói í fjöldan allan af plötusnúðum og taki saman árslista yfir það sem stóð upp úr í danstónlist á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×