ESPN greinir frá þessu. Mörgum leikmönnum United þykja æfingar Rangnicks gamaldags. Mikil áhersla er lögð skipulag liðsins en minna er um æfingar þar sem leikmenn geta bætt sig í ákveðnum þáttum leiksins.
Rangnick lætur Armas oft stýra æfingum en leikmenn United eru ekki par sáttir við hann. Sumir þeirra líkja honum við Ted Lasso, hinn ofurbjartsýna en takmarkaða þjálfara sem Jason Sudeikis túlkar í samnefndum þáttum.
Armas hafði aldrei þjálfað í Evrópu áður en hann kom til United. Síðasta þjálfarastarf hans var hjá Toronto í MLS-deildinni en hann var rekinn þaðan eftir að liðið vann aðeins tvo af fimmtán leikjum undir hans stjórn.
Rangnick tók við United í lok nóvember á síðasta ári. Hann hefur stýrt liðinu í tólf leikjum. Sex hafa unnist, fimm endað með jafntefli og aðeins einn tapast.