Veður

Hvessir úr suð­austri í kvöld og þykknar upp

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður yfirleitt á bilinu núll til sex stig.
Hiti verður yfirleitt á bilinu núll til sex stig. Vísir/Vilhelm

Spáð er fremur hægri suðlægri átt með skúrum eða slydduéljum í dag, en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Seinni partinn nálgast svo lægðardrag suðvestan úr hafi og fer því að hvessa úr suðaustri og þykkna upp.

Á vef Veðurstofunnar segir að það gangi í allhvassa eða hvassa suðaustanátt með rigningu eða slyddu undir miðnætti.

„Er líður á nóttina hreyfist lægðardragið norðaustur yfir landið með úrkomu nyrðra í formi snjókomu eða slyddu.

Jafnframt, snýst í suðvestankalda með skúrum eða slydduéljum sunnan heiða, en léttir til norðan- og austanlands upp úr hádegi. Áfram stíf suðvestanátt með skúrum eða éljum sunnan og vestan til á miðvikudag. Hiti yfirleitt á bilinu 0 til 6 stig.

Þeir sem hyggja á ferðalög í nótt og fyrramálið, er bent á að kynna sér vel færð á vegum og skyggni áður en lagt er af stað,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, víða 8-15 m/s og rigning eða snjókoma með köflum, en styttir upp NA-lands seinnipartinn. Bætir í vind um kvöldið. Hiti kringum frostmark.

Á miðvikudag: Suðvestan 10-18 m/s og skúrir eða él, hvassast syðst, en bjartviðri á A-landi. Dregur úr vindi um kvöldið. Hiti nærri frostmarki.

Á fimmtudag: Hvöss sunnanátt og rigning eða skúrir, en þurrt að kalla NA-lands. Hiti 3 til 10 stig.

Á föstudag: Stíf suðvestanátt og dálitlar skúrir eða slydduél, en þurrt og bjart á A-verðu landinu. Hiti 0 til 7 stig.

Á laugardag: Suðlæg átt og dálítil væta á v-verðu landinu, en annars úrkomulítið. Fremur milt í veðri.

Á sunnudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt með smá éljum, en úrkomulítið fyrir norðan. Svalt í veðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×