Ítalíumeistararnir komnir með annan fótinn í 16-liða úrslit

Edin Dzeko skoraði bæði mörk Inter í kvöld.
Edin Dzeko skoraði bæði mörk Inter í kvöld. Alessandro Sabattini/Getty Images

Ítalíumeistarar Inter unnu í kvöld góðan 2-0 sigur gegn Shakhtar Donetsk í D-riðli Meistaradeildar Evrópu. Liðið er nú hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum, en hagstæð úrslit í leik Real Madrid og Sheriff gætu tryggt sætið fyrir þá.

Heimamenn í Inter voru mun sterkari aðilinn í kvöld og virtust alltaf líklegri til að brjóta ísinn. Ekki gekk það þó í fyrri hálfleik og staðan því 0-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Áfram héldu leikmenn Inter að þjarma að gestunum í seinni hálfleik, og það átti eftir að skila sér.

Á 57. mínútu setti Lautaro Martinez boltann í netið, en markið fékk ekki að standa þar sem hann var dæmdur brotlegur.

Það kom þó ekki að sök því á 61. mínútu var Edin Dzeko búinn að koma heimamönnum í 1-0, og sex mínútum síðar var hann búinn að tvöfalda forystuna eftir stoðsendingu frá Ivan Perisic.

Ekki urðu mörkin fleiri og niðurstaðan varð því 2-0 sigur Inter. Liðið situr nú á toppi D-riðils með tíu stig, en Shakthtar Donetsk situr hins vegar í neðsta sæti riðilsins.

Seinna í kvöld mætast Real Madrid og Sheriff, en mistakist Sheriff að vinna þann leik er Inter öruggt með sæti í 16-liða úrslitum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira