Lýst sem hetju eftir að hafa hjálpað manni sem hneig niður Sindri Sverrisson skrifar 3. nóvember 2021 14:30 Pierre Emile Höjbjerg stóð í ströngu á sunnudag í leiknum gegn Manchester United sem reyndist síðasti leikur Tottenham undir stjórn Nuno Espírito Santo. Getty/Chloe Knott Danski landsliðsmaðurinn Pierre Emile Höjbjerg var á vellinum og hjálpaði til þegar Christian Eriksen fór í hjartastopp á EM í sumar. Hann lenti í svipuðum aðstæðum á sunnudag.
Höjbjerg vill örugglega gleyma sem fyrst 3-0 tapi Tottenham gegn Manchester United á sunnudaginn. Honum var hins vegar lýst sem hetju fyrir það sem gerðist eftir leik. Samkvæmt Daily Mail átti Höjbjerg stóran þátt í því að bjarga manni sem hneig niður fyrir utan leikvang Tottenham eftir leikinn. Daninn var kominn upp í bílinn sinn og á leið heim þegar hann sá manninn og þaut út til að hjálpa honum. Hringt var eftir sjúkrabíl en það var óþarfi þar sem einn slíkur var á leikvanginum. Ekið var með manninn á North Middlesex spítalann en upplýsingar um líðan hans eru trúnaðarmál, samkvæmt svari spítalans við fyrirspurn Daily Mail. Höjbjerg var hjá manninum þar til að sjúkrabíllinn ók á brott með hann. Vegfarendur lýstu honum sem „hetju“ samkvæmt Daily Mail en sjálfur mun Daninn hafa sem minnst viljað gera úr sínum hlut og fullyrt að hann hefði aðeins gert það sem allir aðrir hefðu gert.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira