Bar ábyrgð á andláti Emilianos Sala Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. október 2021 11:01 David Henderson mætti fyrir rétt í Cardiff í gær. getty/Matthew Horwood David Henderson, sem skipulagði flugið sem fótboltamaðurinn Emiliano Sala lést í, hefur verið fundinn sekur um að hafa stofnað öryggi flugvélarinnar í hættu og bera þar með ábyrgð á slysinu.
Sala lést í janúar 2019 þegar flugvélin sem hann var um borð í hrapaði í Ermarsund. Flugmaðurinn David Ibbotson lést einnig en lík hans hefur aldrei fundist. Sala var nýgenginn í raðir Cardiff City og var á leið til Wales frá Nantes í Frakklandi þar sem hann lék áður. Henderson skipulagði flugið sem var að nóttu til. Ibbotson hafði ekki réttindi til að fljúga á nóttunni og þá var flugleyfi hans útrunnið. Henderson var meðvitaður um þetta. Eftir slysið bað hann þá sem vissu af fluginu að þegja um að Ibbotson hefði ekki haft réttindi til að fljúga vélinni. Hann sagði að þau myndu opna ormagryfju ef þau tjáðu sig. Fay Keely, sem átti flugvélina, hafði beðið Henderson um að leyfa Ibbotson ekki að fljúga henni ekki aftur eftir að hafa fengið tvær viðvaranir frá flugmálayfirvöldum. Henderson lét þessi varnaðarorð sem vind um eyru þjóta. Í skilaboðum til Ibbotson sagði hann að þeir ættu möguleika á að græða pening ef þeir héldu viðskiptavinunum ánægðum og flugmálayfirvöld skiptu sér ekki af þeim. Henderson var í gær fundinn sekur um að hafa stofnað öryggi flugvélarinnar í hættu og þannig borið ábyrgð á slysinu. Dómur í málinu verður kveðinn upp 12. nóvember en búist er við því að Henderson eigi yfir höfði sér fangelsisdóm.
Emiliano Sala Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Fleiri fréttir Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Sjá meira