Bíó og sjónvarp

Trine Dyrholm mætir á frumsýningu Margrétar fyrstu á RIFF

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Trine Dyrholm á frumsýningunni í Danmörku.
Trine Dyrholm á frumsýningunni í Danmörku.

Margrét fyrsta eða MARGRETE DEN FØRSTE er lokamynd RIFF Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í í Reykjavík í ár. Hátíðin verður haldin í átjánda sinn þann 30. september og stendur til 10. október.

Hin þekkta danska leikkona, Trine Dyrholm leikur aðalhlutverkið í myndinni, og verður hún heiðursgestur RIFF af því tilefni. Trine er auk þess formaður dómnefndar í Vitranaflokki RIFF þar sem níu myndir ungra kvikmyndaleikstjóra keppa um Gyllta lundann, aðalverðlaun hátíðarinnar. 

„Það er mikill heiður að fá Trine til landsins til að taka þátt í hátíðinni en hún er tvímælalaust ein hæfileikaríkasta og virtasta leikkona Norðurlanda í dag og þótt víðar væri leitað enda margverðlaunuð fyrir frammistöðu sýna. Það verður gaman að kynna hana fyrir bransanum hér og íslenskum áhorfendum,“ segir Hrönn Marinósdóttir stjórnandi RIFF og bætir við að henni til heiðurs verði auk þess sýnd myndin Drottningin frá 2019 með Trine í aðalhlutverki en hún hlaut til dæmis aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni Gautaborg fyrir þá mynd. 

Stilla úr kvikmyndinni.

Trine mun spjalla við áhorfendur í Bíó Paradís af því tilefni. Stórmyndin Margrét fyrsta er samstarfsverkefni allra Norðurlandanna og er ein dýrasta kvikmynd sem framleidd hefur verið á Norðurlöndunum. Myndin var frumsýnd síðast liðinn miðvikudag við frábærar viðtökur í Kaupmannahöfn og voru meðframleiðendi myndarinnar Kristinn Þórðarson hjá True North og leikkonurnar Tinna Hrafnsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir viðstödd frumsýninguna en báðar leika þær veigamikil hlutverk í myndinni. 

Tinna Hrafnsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir á frumsýningunni.Aðsent

Með Trine í dómnefnd í ár sitja Gísli Örn Garðarsson leikari, leikstjóri og framleiðandi, Aníta Briem leikkona, Gagga Jónsdótttir, leikstjóri og handritshöfundur og Yorgos Krassakopoulos dagskrárstjóri hinnar virtu Þessalónikuhátíðar á Grikklandi. 

Myndin fjallar um Margréti drottningu sem tileinkaði líf sitt gerð Kalmarsáttmálans en sá sáttmáli var upphafið að Skandinavíu eins og við þekkjum hana í dag og þess bræðralags sem þar ríkir. Margrét drottning ræður Svíþjóð, Noregi og Danmörku í gegnum ættleiddan son sinn, Erik. Samsæri setur Margréti í úlfakreppu sem gæti eyðilagt ævistarf hennar, Kalmarsambandið. 

Margrét Danadrottning á frumsýningunni.Aðsent

Myndin er sannkallað ofurkonu framlag til kvikmyndagerðar því hún er um eina áhrifamestu konu í sögu Norðurlanndanna sem var á undan sinni samtíð og er leikstýrt af Charlotte Sieling einni fremstu leikstýru Norðurlannda í dag en áður leikstýrði hún meðal annars: The Bridge, The Killing og Homeland. Aldrei áður hefur verið framleidd mynd af þessari stærðargráðu á Norðurlöndunum. Tine hefur áður hlotið um 27 verðlaun og 26 tilnefningar fyrir besta leikframmistöðu bæði í aðal- og aukahlutverki. 

Hægt er að tryggja sér passa eða klippikort á hátíðina og stakir miðar fara í sölu uppur miðjum mánuðinn. Best að fylgjast vel með á RIFF.is fram að hátíð.


Tengdar fréttir

Nýjasta tækni og kvikmyndir á RIFF í ár

Hvar liggja mörkin milli kvikmynda og tölvuleikja? Þessari spurningu er velt upp á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð Reykjavíkur í ár, í nýjum flokki sem ber nafnið Nýjasta tækni og kvikmyndir, eða RIFF XR upp á ensku.

Sundbíóið hefur fest sig í sessi á RIFF

Nú fer að styttast í RIFF kvikmyndahátíðina. Upplifunarbíóið í Sundhöllinni verður aftur einn af sérviðburðum hátíðarinnar, enda hefur sundbíóið fest sig í sessi sem ein vinsælasta sýningin á RIFF.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×