Einkunnir Íslands: Birkir Már skástur í gjörbreyttu liði Íþróttadeild Vísis skrifar 2. september 2021 21:36 Birkir Már Sævarsson með boltann í leiknum gegn Rúmenum í kvöld. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Mikið breytt lið Íslands frá fyrstu leikjunum í undankeppni HM karla í fótbolta náði ekki að koma í veg fyrir 2-0 tap gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli. Birkir Már Sævarsson stóð upp úr í einkunnagjöf Vísis.
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari gaf fjölda leikmanna tækifæri til að sýna sig og sanna í kvöld, í fjarveru margra af lykilmönnum landsliðsins síðustu ár. Í byrjunarliðinu voru menn sem fengu að spila sinn fyrsta mótsleik fyrir A-landsliðið og komust þeir misvel frá sínu. Arnar gerði þrjár skiptingar í seinni hálfleiknum og ákveðið líf fylgdi innkomu Ísaks Bergmanns Jóhanenssonar og Jóns Dags Þorsteinssonar en þeir náðu þó ekki að koma boltanum í netið frekar en liðsfélagar þeirra. Heilt yfir náði íslenska liðið ekki að skapa nægilega mikið fram á við og varnarleikurinn var einnig gloppóttur. Hér að neðan má sjá einkunnir íslenska liðsins í kvöld. Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður 6 Gat lítið gert í mörkunum tveimur. Varði annars af öryggi það sem á markið kom án þess að þurfa að taka neitt svakalega á honum stóra sínum. Á auðvelt með að taka við sendingum og skilaði boltanum ágætlega frá sér. Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 7 Sennilega besti maður Íslands í leiknum. Var sífellt tilbúinn að skeiða fram hægri kantinn, í sínum 99. landsleik, en skilaði sinni varnarvinnu samt ágætlega og hleypti Sorescu ekki framhjá sér. Hjörtur Hermannsson, miðvörður 5 Óöruggur í upphafi leiks og gerði sig sekan um glæpsamleg mistök þegar hann gaf nánast mark með of lausri sendingu á Rúnar Alex, en slapp með skrekkinn. Kom sér stundum í vandræði með boltann en varðist ágætlega og náði sér betur á strik þegar leið á leikinn. Brynjar Ingi Bjarnason, miðvörður 6 Virtist líða nokkuð þægilega í sínum fyrsta mótsleik með A-landsliðinu. Yfirvegaður og með nákvæmar og oftast öruggar sendingar, og gekk ágætlega að eiga við sóknarmenn Rúmena. Guðmundur Þórarinsson, vinstri bakvörður 5 Duglegur að koma fram á við en skilaði boltanum stundum ekki nægilega vel frá sér. Svaf illa á verðinum í fyrra marki Rúmena þegar hann missti af Dennis Man á fjærstönginni en getur annars þokkalega við unað eftir að hafa loksins fengið tækifæri til að spila mótsleik fyrir íslenska A-landsliðið. Jóhann Berg Guðmundsson, hægri vængmaður 5 Oft skapað meiri ógn enda alltaf haft sterkari samherja sér til fulltingis í landsliðinu. Átti tvær fínar fyrirgjafir í kjölfar þess að Rúmenar komust yfir og kláraði 90 mínútna leik, sem er gott, en hefði eflaust viljað sýna meira í fyrirliðahlutverkinu. Guðlaugur Victor Pálsson, miðjumaður 4 Victor á, sem aftasti miðjumaður, sína sök á því hve mikill losarabragur var á varnarleik Íslands í fyrri hálfleiknum. Pressaði illa á Stanciu þegar hann lagði upp fyrra mark leiksins og gerði lítið fyrir íslenska liðið fram á við, eins og var svo sem ekki ætlast til. Birkir Bjarnason, miðjumaður 6 Afar vinnusamur og virkur í spili íslenska liðsins. Leið að vanda vel með boltann en kannski fullvel stundum sem hægði á sóknarleiknum. Kom sér í hættuleg færi og var í tvígang afar nálægt því að skora. Andri Fannar Baldursson, miðjumaður 5 Hafði ekki nógu mikil áhrif fram á við en gerði svo sem heldur engin stór mistök í leiknum. Þarf að sýna meira í því hlutverki sem honum var ætlað á miðjunni í kvöld en er auðvitað rétt að hefja sinn feril. Albert Guðmundsson, vinstri vængmaður 4 Komst sáralítið áleiðis í leiknum og olli vonbrigðum með frammistöðu sinni á vinstri kantinum. Einstaka sinnum náðu þeir Guðmundur að tengja vel saman en það skilaði engu. Færður í fremstu stöðu um tíma í seinni hálfleik en það breytti engu. Viðar Örn Kjartansson, framherji 5 Fékk gott skallafæri í fyrri hálfleik sem honum tókst ekki að nýta en vantaði annars oftast eitthvað smávegis upp á til að koma sér í góð færi. Óvænt í byrjunarliðinu eftir að hafa ekki verið valinn í upphaflega 25 manna hópinn en náði ekki að grípa tækifærið að þessu sinni. Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á fyrir Viðar Örn á 66. mínútu 6 Kom inn á vinstri kantinn og var nokkuð ógnandi fram á við. Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á fyrir Andra Fannar á 66. mínútu 6 Mjög viljugur til að sækja hratt og búa eitthvað óvænt til. Ef til vill of samviskusamur í seinna marki Rúmena þegar hann kom í veg fyrir að rangstaða væri dæmd. Andri Lucas Guðjohnsen kom inn á fyrir Albert á 79. mínútu Komst lítið ef nokkuð í boltann þann tíma sem hann spilaði. Spilaði of lítið til að fá einkunn.
HM 2022 í Katar Tengdar fréttir Viðar Örn: „Við hefðum unnið þennan leik ef við hefðum skorað í fyrri hálfleik“ Viðar Örn Kjartansson, framherji íslenska landsliðsins var svekktur með 2-0 tap liðsins gegn Rúmenum á Laugardalsveli í kvöld. Hann segir að það sé súrt að sjá liðið spila vel en fá ekkert út úr leiknum. 2. september 2021 21:27 Landsliðsþjálfarinn eftir súrt tap: „Þó við séum að þróa liðið viljum við alltaf vinna“ „Við erum bara hundfúlir. Ég er nokkuð sáttur með frammistöðuna í heild. Auðvitað færðu alltaf einhverja möguleika á móti, það er þannig í fótbolta,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, eftir 0-2 tapið gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli í kvöld. 2. september 2021 21:20 Kom Rúnari Alex líka á óvart að hann fékk að byrja: Ekki verið auðveldir dagar Rúnar Alex Rúnarsson stóð óvænt í íslenska markinu á móti Rúmeníu í kvöld og komst vel frá sínu þrátt fyrir að hafa fengið á sig tvö mörk. Núll stig á heimavelli voru samt ekki úrslitin sem íslenska liðið var að vonast eftir. 2. september 2021 21:08 Jóhann Berg: Gríðarlegt svekkelsi „Bara gríðarlegt svekkelsi. Fannst fyrri hálfleikurinn flottur hjá okkur, við fáum gott færi sem við klárum á venjulegum degi. Þá er þetta allt annar leikur,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði Íslands, eftir svekkjandi 0-2 tapi gegn Rúmeníu í undankeppni HM í kvöld. 2. september 2021 20:49 Umfjöllun: Ísland - Rúmenía 0-2 | Leiðin til Katar nánast ófær eftir tap fyrir Rúmenum Ísland tapaði fyrir Rúmeníu, 0-2, í fjórða leik sínum í J-riðli undankeppni heimsmeistaramótsins 2022 á Laugardalsvelli í kvöld. Dennis Man og Nicolae Stanciu skoruðu mörk Rúmena í seinni hálfleik. 2. september 2021 20:50 Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Golf „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fleiri fréttir Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira
Viðar Örn: „Við hefðum unnið þennan leik ef við hefðum skorað í fyrri hálfleik“ Viðar Örn Kjartansson, framherji íslenska landsliðsins var svekktur með 2-0 tap liðsins gegn Rúmenum á Laugardalsveli í kvöld. Hann segir að það sé súrt að sjá liðið spila vel en fá ekkert út úr leiknum. 2. september 2021 21:27
Landsliðsþjálfarinn eftir súrt tap: „Þó við séum að þróa liðið viljum við alltaf vinna“ „Við erum bara hundfúlir. Ég er nokkuð sáttur með frammistöðuna í heild. Auðvitað færðu alltaf einhverja möguleika á móti, það er þannig í fótbolta,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, eftir 0-2 tapið gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli í kvöld. 2. september 2021 21:20
Kom Rúnari Alex líka á óvart að hann fékk að byrja: Ekki verið auðveldir dagar Rúnar Alex Rúnarsson stóð óvænt í íslenska markinu á móti Rúmeníu í kvöld og komst vel frá sínu þrátt fyrir að hafa fengið á sig tvö mörk. Núll stig á heimavelli voru samt ekki úrslitin sem íslenska liðið var að vonast eftir. 2. september 2021 21:08
Jóhann Berg: Gríðarlegt svekkelsi „Bara gríðarlegt svekkelsi. Fannst fyrri hálfleikurinn flottur hjá okkur, við fáum gott færi sem við klárum á venjulegum degi. Þá er þetta allt annar leikur,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði Íslands, eftir svekkjandi 0-2 tapi gegn Rúmeníu í undankeppni HM í kvöld. 2. september 2021 20:49
Umfjöllun: Ísland - Rúmenía 0-2 | Leiðin til Katar nánast ófær eftir tap fyrir Rúmenum Ísland tapaði fyrir Rúmeníu, 0-2, í fjórða leik sínum í J-riðli undankeppni heimsmeistaramótsins 2022 á Laugardalsvelli í kvöld. Dennis Man og Nicolae Stanciu skoruðu mörk Rúmena í seinni hálfleik. 2. september 2021 20:50