Fimmti sigurinn í röð skaut Liver­pool í Meistara­deildina

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það var létt yfir leikmönnum Liverpool í dag eftir langt og strangt tímabil.
Það var létt yfir leikmönnum Liverpool í dag eftir langt og strangt tímabil. Paul Ellis/Getty

Liverpool mun leika í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Eftir fimmta sigurinn í röð tryggðu þeir sætið en þeir höfðu betur gegn Crystal Palace í dag, 2-0.

Palace byrjaði leikinn betur og Alisson þurfti að taka á honum stóra sínum. Skömmu síðar slapp Androws Townsend einn gegn Alisson en skaut boltanum framhjá.

Liverpool tók hægt og rólega yfir leikinn en Rhys Williams klúðraði algjöru dauðafæri á 20. mínútu. Hornspyrna Andy Robertson fór beint á kollinn á Williams sem skallaði boltanum yfir úr dauðafæri.

Á 36. mínútu komst Liverpool yfir. Boltinn féll fyrir Sadio Mane eftir hornspyrnu og eftir darraðadans kom hann boltanum í netið. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

Sadio Mane tvöfaldaði svo forystuna á 74. mínútu. Eftir skyndisókn og laglegt samspil Salah og Wijnaldum, skaut Mane í varnarmann Palace og í netið.

Lokatölur 2-0 og endar Liverpool í þriðja sætinu með 69 stig. Þetta var jafn framt síðasti leikur Roy Hodgsons en hann skilur við Palace í fjórtánda sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira