Lífið

Stutt í milli­ríkja­deilu þegar Bragi flaggaði fána Norður-Kóreu

Eiður Þór Árnason skrifar
Óhætt er að segja að Bragi Þór Antoníusson hafi verið orðinn ögn fróðari um sögu Kóreuskagans í lok eftirminnilegrar vinnuvaktar árið 2002.
Óhætt er að segja að Bragi Þór Antoníusson hafi verið orðinn ögn fróðari um sögu Kóreuskagans í lok eftirminnilegrar vinnuvaktar árið 2002. Samsett

Það varð uppi fótur og fit í gestamóttöku Hótels Sögu í lok september árið 2002 þegar snör handtök komu í veg fyrir milliríkjadeilu.

Atvikið átti sér stað þegar Bragi Þór Antoníusson var 17 ára starfsmaður á hótelinu og bar ábyrgð á því flagga réttum fánum fyrir utan hótelið þegar erlendir ráðamenn gerðu sér för þangað.

Bragi segir að slíkar heimsóknir hafi verið tíður atburður á Hótel Sögu á þessum tíma og því hafi starfsmenn ekki kippt sér mikið upp við það þegar Sung-hong Choi, þáverandi utanríkisráðherra Suður-Kóreu, kom þangað til fundar við Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra.

Trompaður diplómati hringdi viðvörunarbjöllum

Líkt og oft áður kom það meðal annars í hlut Braga að gera allt klárt áður en suður-kóreska sendinefndin mætti á svæðið og var hann sendur í fánaskápinn. Hótelið lagði mikið upp úr því að eiga fána allra þjóða í handraðanum og þar sá ungur Bragi tvo Kóreufána, annan merktan norður og hinn suður.

„Skrítið, jæja ég flagga bara þessum,“ skrifar Bragi á Twitter þar sem hann greindi fyrst frá þessu skrautlega atviki og lýsir hugsanagangi 17 ára unglings sem hafði eðlilega lítið kynnt sér langa átakasögu Suður- og Norður-Kóreu.

„Rétt áður en bílalestin kemur í hús trompast einhver frá utanríkisráðuneytinu og gargar yfir lobbýið: „Eruð þið að reyna að starta pólitísku stríði!?!““

Þá hafði Bragi flaggað fána Norður-Kóreu fyrir utan Hótel Sögu, rétt áður en suður-kóreski utanríkisráðherrann renndi í hlað.

Ræddu tengslin við grannríki sín

Bragi, sem stýrir nú stafrænni viðskiptaþróun hjá Festi, segir í samtali við Vísi að smáatriði þessarar mögnuðu sögu séu ekki mjög skýr nú hátt í tuttugu árum síðar. Hann hafði starfað á hótelinu í að verða þrjú ár þegar atvikið átti sér stað og ollu mistökin honum ekki miska.

„Ég var bara 17 ára tittur að vinna þarna í lobbýinu og minningin er hálf óljós. Ég man ekki hvort það var starfsmaður utanríkisráðuneytisins sem tók niður fánann eða einhver annar en hinn var bara settur upp og málið var úr sögunni.“

Tókst það með öðrum orðum áður en Sung-hong Choi þurfti að horfa upp á fána óvinaþjóðar sinnar, augnablikum áður en hann settist niður með Halldóri Ásgrímssyni til að ræða „tengsl ríkjanna við grannríki sín,“ eins og það er orðað í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins frá 24. september 2002.


Tengdar fréttir

Lofar að skila líki suður­kóresks manns

Spenna hefur farið vaxandi milli Norður- og Suður-Kóreu undanfarin misseri og tilkynntu norðurkóresk yfirvöld í dag að þau myndu afhenda lík suðurkóresks manns sem drepinn var af hersveitum Norður-Kóreu finnist hann í leitaraðgerðum.

Sendu bæklingablöðrur til Norður-Kóreu í nótt

Hópur fólks sem flúið hefur frá Norður-Kóreu sendi í nótt blöðrur hlaðnar áróðursbæklingum gegn einræðisstjórn Kim Jong Un yfir landamæri Norður og Suður-Kóreu, þvert á vilja yfirvalda beggja ríkja.

Norðurkóreskir hermenn sjást við landamærin

Svo virðist sem Norður-Kóreumenn hafi staðið við hótun sína um að senda hermenn að hlutlausa svæðinu á landamærunum við Suður-Kóreu. Frá þessu greindu suður-kóreskir miðlar í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×