Tónlist

Þessi fengu til­nefningu til ís­lensku tón­listar­verð­launanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Söngkonan Bríet Elfar fær sjö tilnefningar í ár. 
Söngkonan Bríet Elfar fær sjö tilnefningar í ár. 

Tilkynnt var í dag hvaða tónlistarfólk, hópar, viðburðir og fleiri hljóta tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2021 fyrir hið fordæmalausa tónlistarár 2020. Verðlaunin verða veitt í Silfurbergi Hörpu miðvikudagskvöldið 14.apríl.

Tónlistarárið 2020 verður lengi í minnum haft fyrir margar sakir. Sköpunarkraftur og áræðni íslensks tónlistarfólks fór ekki framhjá neinum, á sama tíma þegar heimsfaraldur gekk yfir alla heimsbyggðina með öllum þeim takmörkunum á hinu hefðbundna lífi sem við þekkjum.

Sjálfsbjargarviðleitnin skilaði sér í fjölmörgum skemmtilegum viðburðum á rafrænu formi, tónlist var áberandi í ljósvakamiðlum og síðast en ekki síst var uppskera nýrrar tónlistar með mesta móti. Innsendingar til verðlaunanna gáfu glögga mynd af því hversu blómlegt tónlistarstarfið var árið 2020 en metfjöldi barst í öllum flokkum verðlaunanna.

Flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár hlýtur Bríet Ísis Elfar fyrir tónlistina á plötu sinni Kveðja, Bríet en tilnefningarnar eru sjö talsins auk þess sem Pálmi Ragnar Ásgeirsson samstarfsmaður Bríetar er tilnefndur sem lagahöfundur ársins.

Ingibjörg Turchi hefur fengið mikið lof gagnrýnenda og djassáhugafólks fyrir plötu sína Meliae en hún var m.a. valin plata ársins hjá Morgunblaðinu í fyrra. Ingibjörg ásamt tónlistarmanninum Auði hljóta næsflestar tilnefningar, sex talsins og þau GDRN og Ásgeir hljóta fjórar. Um 120 flytjendur og hópar eru tilnefndir í ár og eru það fleiri en þrjátíu sem hljóta fleiri en eina tilnefningu í ár.

Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 14. apríl og verður verðlaunahátíðin í beinni útsendingu á RÚV. Kynnir kvöldsins verður, grín- og leikkonan Saga Garðarsdóttir.

Eftirtaldir hljóta tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna  2021:

Popp - Plata ársins

  • BRÍET - Kveðja, Bríet
  • GDRN - GDRN
  • Hjaltalín - Hjaltalín
  • JFDR - New Dreams
  • Ásgeir - Sátt

Rokk - Plata ársins

  • Skoffín - Skoffín hentar íslenskum aðstæðum
  • Sólstafir - Endless Twilight of Codependent Love
  • Auðn - Vökudraumsins fangi
  • Celebs - Tálvon hinna efnilegu
  • Dream Wife - So When You Gonna...

Rapp og hipphopp

  • CYBER - VACATION
  • JóiPé x Króli - Í miðjum kjarnorkuvetri
  • Logi Pedro - Undir bláu tungli

Raftónlist - Plata ársins

  • Ultraflex - Visions of Ultraflex
  • gugusar - Listen To This Twice
  • Mikael Lind - Give Shape to Space
  • Moff & Tarkin - Man of the Match
  • Volruptus - First Contact

Popp - Lag ársins

  • Esjan - BRÍET
  • Think About Things - Daði Freyr
  • Vorið - GDRN
  • Það bera sig allir vel - Helgi Björns 
  • Stundum - Moses Hightower

Rokk - Lag ársins

  • Haf trú - HAM
  • Visitor - Of Monsters and Men
  • Eldborg - Auðn
  • Prince - MAMMÚT
  • Kraumar - Celebs

Rapp og hipphopp - Lag ársins

  • Ungi Besti & Milljón - Vera Illuga
  • Auður og Floni - Týnd og einmana
  • JóiPé x Króli – Geimvera
  • CYBER - calm down
  • Logi Pedro - Ef Grettisgata gæti talað

Raftónlist - Lag ársins

  • Inspector Spacetime - Hvað sem er
  • Ólafur Arnalds - Loom (feat. Bonobo)
  • JFDR - Think Too Fast
  • Ultraflex - Full of Lust
  • Kuldaboli - Ískaldur veruleikinn

Tónlistarviðburður ársins

  • Heima með Helga
  • Auður í Vikunni með Gísla Marteini
  • Listagjöf Listahátíðar í Reykjavík
  • HAM í Listasafni Reykjavíkur
  • Big Party Post-Club International

Textahöfundur ársins

  • Bríet Ísis Elfar
  • Jóhannes Bjarki Bjarkason
  • Andri Ólafsson & Steingrímur Karl Teague
  • Einar Georg Einarsson, Júlíus Aðalsteinn Róbertsson og Ásgeir Trausti Einarsson
  • Benedikt H. Hermannsson

Lagahöfundur ársins

  • Pálmi Ragnar Ásgeirsson
  • Hjaltalín
  • Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
  • Auðunn Lúthersson
  • Moses Hightower

Söngvari ársins

  • Högni Egilsson
  • Jón Jónsson
  • Auðunn Lúthersson
  • Ásgeir Trausti Einarsson
  • Matthías Matthíasson

Söngkona ársins

  • Bríet Ísis Elfar
  • Jófríður Ákadóttir
  • Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
  • Jelena Ciric
  • Rakel Mjöll Leifsdóttir

Tónlistarflytjandi ársins

  • BRÍET
  • Auður
  • HAM
  • Daði Freyr
  • Bubbi Morthens

Tónlistarmyndband ársins

Í samstarfi við Albumm.is. Hægt er að kjósa hér.

Sumarið sem aldrei kom - Jónsi. Leikstjórn: Frosti Jón Runólfsson.

Klippa: Jónsi - Sumarið sem aldrei kom

Pictures - Ásgeir. Leikstjórn: Einar Egilsson

Klippa: Ásgeir - Pictures

Ljós - Auður feat. BRÍET og Drengur. Leikstjórn: Kristinn Arnar Sigurðsson aka krassasig

Hvíti dauði - Teitur Magnússon (feat. Gunnar Jónsson Collider). Leikstjórn: Jón Bjarki Magnússon

Klippa: Teitur Magnússon - Hvíti dauði feat. Gunnar Jónsson Collider

Píla - Joey Christ ft. Lil Binni. Leikstjórn: Rough Cult

Take the Seasons - Oscar Leone. Leikstjórn: Midnight Mar

Klippa: Oscar Leone - Take the Seasons

Easy - aYia. Leikstjórn: Salomon Ligthelm

Klippa: aYia - Easy

Back To The Sky - Ólafur Arnalds, JFDR. Leikstjórn: Arni & Kinski

Klippa: Ólafur Arnalds og JFDR - Back To The Sky

Bjartasta vonin

Í samstarfi við Rás 2. Hægt er að kjósa hér.

  • Kristin Sesselja
  • Inspector Spacetime
  • Skoffín
  • gugusar
  • Salóme Katrín

Sígild og samtímatónlist

PLATA ÁRSINS

  • Elfa Rún Kristinsdóttir - Baroque Violin Sonatas
  • Víkingur Heiðar Ólafsson - Debussy-Rameau
  • Peter Máté - John Speight, Solo Piano Works
  • Halldór Smárason - STARA: Music of Halldór Smárason
  • Páll Ragnar Pálsson – Atonement

TÓNVERK ÁRSINS

  • Finnur Karlsson - Accordion Concerto
  • Hafdís Bjarnadóttir - Sumar
  • Bára Gísladóttir - VÍDDIR
  • Hugi Guðmundsson - BOX, konsert fyrir harmónikku og lírukassa
  • Snorri Sigfús Birgisson - Konsert fyrir hljómsveit

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – HÁTÍÐIR

  • Listagjöf Listahátíðar í Reykjavík
  • Myrkir Músíkdagar
  • Reykholtshátíð 2020
  • Sönghátíð í Hafnarborg
  • Sumartónleikar í Skálholti 2020

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – TÓNLEIKAR

  • 70 ára afmælistónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands (5. mars)
  • KIMI: Afkimar
  • Brák og Bach
  • The Modern Romantic – Stuart Skelton (Sönghátíð í Hafnarborg)
  • Ekkert er sorglegra en manneskjan - Friðrik Margrétar-Guðmundsson

SÖNGKONA ÁRSINS

  • Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
  • Hallveig Rúnarsdóttir
  • Heiða Árnadóttir
  • Herdís Anna Jónasdóttir
  • Sigríður Ósk Kristjánsdóttir

SÖNGVARI ÁRSINS

  • Elmar Gilbertsson
  • Kristinn Sigmundsson
  • Stuart Skelton
  • Sveinn Dúa Hjörleifsson
  • Sverrir Guðjónsson

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR

  • Anna Guðný Guðmundsdóttir
  • Elfa Rún Kristinsdóttir
  • Víkingur Heiðar Ólafsson
  • Halla Steinunn Stefánsdóttir
  • Sæunn Þorsteinsdóttir

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR

  • Sinfóníuhljómsveit Íslands
  • Barokkbandið Brák
  • Elektra Ensemble
  • Strokkvartettinn Siggi Cantoque Ensemble

Bjartasta vonin tilkynnt í Hörpu 14. apríl


Djass- og blústónlist

PLATA ÁRSINS

  • Melismetiq Live - Melismetiq
  • Make - MONOGLOT
  • Meliae - Ingibjörg Turchi
  • hits of - hist og
  • Four Elements - Haukur Gröndal og Frelsissveit Íslands

TÓNVERK ÁRSINS

  • Geneva - Ari Bragi Kárason
  • Svörður - Agnar Már Magnússon
  • Þú varst ástin mín - Sigurður Flosason
  • Four Elements - Haukur Gröndal
  • I don't want to sleep - Mikael Máni Ásmundsson og Kristín Birgitta Ágústsdóttir

LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS

  • Ingibjörg Elsa Turchi
  • Sigurður Flosason
  • hist og (Eiríkur Orri Ólafsson, Róbert Reynisson og Magnús Trygvason Eliassen)
  • Mikael Máni Ásmundsson
  • Þórir Úlfarsson (Thor Wolf)

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR

  • Haukur Gröndal
  • Sigurður Flosason
  • Leifur Gunnarsson
  • Andrés Þór
  • Stína Ágústsdóttir

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR

  • Frelsissveit Íslands
  • Ingibjörg Turchi og hljómsveit
  • hist og
  • Brim
  • Sölvi Kolbeinsson & Magnús Trygvason Eliassen

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – TÓNLEIKAR

  • Jazzhátíð Reykjavíkur
  • Jazz í Borgarbókasafninu: Beint á ská og Jazz í hádeginu
  • Síðdegistónar í Hafnarborg
  • Ingibjörg Turchi og hljómsveit: Útgáfutónleikar Meliae í Kaldalóni
  • Charlie Parker with strings á Jazzhátíð Reykjavíkur

Bjartasta vonin tilkynnt í Hörpu 14. apríl


Önnur tónlist: Opinn flokkur, þjóðlaga- og heimstónlist, kvikmynda- og leikhústónlist

PLATA ÁRSINS – KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST

  • Defending Jacob - Atli Örvarsson og Ólafur Arnalds
  • Thin Ice - Biggi Hilmars
  • We’re Here - Herdís Stefánsdóttir
  • The Vasulka Effect - Hugar
  • Chasing the Present - Snorri Hallgrímsson

PLATA ÁRSINS – ÞJÓÐLAGATÓNLIST

  • Brek – Brek
  • Elín Hall - Með öðrum orðum
  • Baggalútur - Kveðju skilað
  • Jelena Ciric - Shelters one
  • Ásgeir Ásgeirsson - Persian path

PLATA ÁRSINS – OPINN FLOKKUR

  • The Ghost Choir - The Ghost Choir
  • Ólafur Arnalds - some kind of peace
  • Red Barnett - Astronauts
  • K.óla - PLASTPRINSESSAN
  • Gyða Valtýsdóttir - EPICYCLE II

LAG/TÓNVERK ÁRSINS – OPINN FLOKKUR

  • Gyða Valtýsdóttir og Úlfur Hansson - Morphogenesis
  • Ólafur Arnalds - Defending Jacob Theme
  • Magnús Jóhann - Sálmur fyrir Sollu systur
  • Kira Kira - We The Feels
  • Red Barnett - Astronaut

Plötuumslag ársins

Ingibjörg Turchi - Meliae: Klara Arnalds

Ingibjörg Turchi - Meliae. Plötuumslag.

BRÍET - Kveðja, Bríet: Bríet Ísis Elfar, Sigurður Erik Hafliðason, Þorgeir Blöndal

BRÍET - Kveðja, Bríet. Plötuumslag.

Mikael Lind - Give Shape to Space: Sigga Björg Sigurðardóttir, Harry Towell

Mikael Lind - Give Shape to Space. Plötuumslag.

K.óla - PLASTPRINSESSAN: Kata Jóhanness, Katrín Helga Ólafsdóttir, Ása Bríet Brattaberg, Arína Vala Þórðardóttir, Ída Arínudóttir, Elvar S. Júlíusson

K.óla - PLASTPRINSESSAN. Plötuumslag.

Jesper Pedersen - Katydids: Páll Ivan frá Eiðum

Jesper Pedersen - Katydids. Plötuumslag.

Upptökustjórn ársins

  • EPICYCLE II - Gyða Valtýsdóttir: Upptökustjórn: Albert Finnbogason, Hljóðblöndun: Gyða Valtýsdóttir, Jónsi og Albert Finnbogason
  • Meliae - Ingibjörg Turchi: Upptökustjórn: Birgir Jón Birgisson, Hljóðblöndun og hljómjöfnun: Ívar Ragnarsson
  • STARA - Halldór Smárason: Upptökustjórn: Dan Merceruio og Daniel Shores
  • Kveðja, Bríet - BRÍET: Upptökustjórn: Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Hljómjöfnun: Friðfinnur Oculus Sigurðsson
  • Hjaltalín - Hjaltalín: Upptökustjórn: Styrmir Hauksson og Hjaltalín





Fleiri fréttir

Sjá meira


×