Matur

Óvænt gleðitíðindi að íslenskt nautakjöt er með mun lægra kolefnisspor

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ragnar og Hrafnhildur á Litla-Ármóti efuðust um að alþjóðlegt meðaltal um kolefnisspor nautakjöts ætti við um íslenskt nautakjöt í vegantilrauninni í Kjötætum óskast. Þau gleðitíðindi bárust svo við lokavinnslu þáttanna að verið væri að vinna að uppfærslu Matarsporsins með kolefnisspori fyrir framleiðslu íslensks nautakjöts sem sýna að það er allt að helmingi lægra en alþjóðlegt meðaltal um nautakjötsframleiðslu bendir til.
Ragnar og Hrafnhildur á Litla-Ármóti efuðust um að alþjóðlegt meðaltal um kolefnisspor nautakjöts ætti við um íslenskt nautakjöt í vegantilrauninni í Kjötætum óskast. Þau gleðitíðindi bárust svo við lokavinnslu þáttanna að verið væri að vinna að uppfærslu Matarsporsins með kolefnisspori fyrir framleiðslu íslensks nautakjöts sem sýna að það er allt að helmingi lægra en alþjóðlegt meðaltal um nautakjötsframleiðslu bendir til. Kjötætur óskast!

Innlent nautakjöt er með allt að helmingi lægra kolefnisspor en erlent nautakjöt þegar reiknað hefur verið inn alþjóðlegt meðaltal fyrir kolefnisspor landnotkunar.

Þetta kom í ljós þegar verkfræðistofan EFLA hafði unnið skýrslu um kolefnisispor nautgriparæktar á Íslandi fyrir Landssamband kúabænda og bætt þeim niðurstöðum við upplýsingar um alþjóðlegt meðaltal landnotkunar. Lóa Pind þáttastjórnandi Kjötætur óskast! segir þetta óvænt gleðitíðindi. Lokaþátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 núna klukkan 19.10.

„Í skýrslunni um kolefnisspor nautgriparæktar á Íslandi er ekki reiknað inn kolefnisspor landnotkunar þar sem áreiðanlegar tölur liggja enn ekki fyrir. Landnotkun getur hinsv vegar vegið þungt í kolefnisspori nautakjöts og mjólkur. Af þessum sökum hefur verið erlenda meðaltalið verið notað í Kolefnisreiknivél EFLU - Matarsporinu - fyrir nautakjöt og mjólk. En kolefnissporið samanstendur meðal annars af metanlosun frá iðragerjun, losun vegna landnotkunar og breyttrar landnotkunar, áburðar og eldsneytisnotkun, framleiðslu fóðurs og fleira.“

Hjónin Ragnar Finnur Sigurðsson og Hrafnhildur Baldursdóttir kúabændur á Litla-Ármóti, sem tóku þátt í vegantilraun fyrir sjónvarpsþættina Kjötætur óskast á Stöð 2, viðruðu frá upphafi tilraunar efasemdir um að kolefnisspor erlends nautakjöts ætti við um íslenskt nautakjöt í Matarspori EFLU.

Matarsporið uppfært

Matarsporið er notað við mælingar á kolefnisspori máltíða í þáttunum. Í lokaþættinum, sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld, mætti Vísindatvíeyki EFLU til fundar við Ragnar og Hrafnhildi á þeirra heimavelli. Þau hjónin framleiða bæði kjöt og mjólk og Ragnar hafði fyrir fundinn mátað tölur fyrir þeirra bú við íslenskt meðalbú sem EFLA hafði stillt upp fyrir Landssamband kúabænda.

Í ljós kom að kjöt- og mjólkurframleiðsla á Litlu-Ármótum var að gefa sambærilegt kolefnisspor og íslenskt meðaltal. Til þess að nálgast betur íslenskt kolefnisspor fyrir nautakjöt og mjólk var ákveðið að nýta tölur fyrir íslensk meðalbú, fengnar úr skýrslu EFLU fyrir Landssamband kúabænda, og bæta við erlendu meðalgildi fyrir kolefnisspor landnotkunar.

„Niðurstaðan er sú að innlent nautakjöt er með allt að helmingi lægra kolefnisspor en erlent nautakjöt þegar reiknað hefur verið inn alþjóðlegt meðaltal fyrir kolefnisspor landnotkunar. Þegar íslenskar tölur liggja fyrir um kolefnisspor landnotkunar fyrir kjötframleiðslu verður kolefnisspor kjöt- og mjólkurframleiðslu í Matarsporinu uppfærð. Slíkar uppfærslur eru gerðar með reglulegu millibili með tilliti til nýrra upplýsinga - en reiknivélin er notuð í stórum mötuneytum á landinu.“

Kolefnisspor hamborgara úr íslensku nautakjöti er þó sjö sinnum meira en hamborgara úr baunabuffi, eins og kemur fram í þættinum. 

Hér fyrir neðan má sjá brot úr lokaþættinum. 

Klippa: Kjötætur óskast! - Kolefnisspor íslenska nautakjötsins

Lokaþáttur af Kjötætur óskast! Vegan með Lóu Pind er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld kl. 19:10. Í þessari fimm þátta seríu fylgist Lóa með fjórum íslenskum fjölskyldum sem féllust á að taka þátt í fjöggura vikna vegan tilraun. Í þætti kvöldsins er hópurinn kominn á síðustu viku tilraunar.

„Í seinni hluta þáttar eru svo niðurstöður þessarar tilraunar afhjúpaðar. Þá fá fjölskyldurnar upplýsingar um hvernig gekk að minnka kolefnissporið og sömuleiðis hvaða áhrif grænkerafæðið hafði á heilsu þeirra. Niðurstöðurnar eru vægast sagt óvæntar og sýna berlega að sama mataræði hentar ekki öllum,“ segir Lóa Pind.

Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumaður er Ívar Kristján Ívarsson og klippingu annaðist Hrafn Jónsson. Framleitt af Lóa Production fyrir Stöð 2. Verkfræðistofan EFLA veitti ómetanlega aðstoð við útreikninga þáttanna.


Tengdar fréttir

Á suðupunkti í miðri vegantilraun: „Maður er alltaf svangur“

„Svona undir lok síðustu viku myndi ég segja að við hefðum orðið í fyrsta skipti alvarlega geðvond,“ segir Annska Arndal, íslenskukennari og leiðsögumaður, sem tekur þátt í vegantilrauninni í þáttaröðinni Kjötætur óskast sem er á Stöð 2 um þessar mundir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×