Matur

Uppskriftir úr Kjötætur óskast: Linsubaunatacos með kasjúsósu og vegan Wellington

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Linsubaunataco

Í þriðja þætti af Kjötætur óskast! heimsóttu fjórir matgæðingar fjölskyldurnar fjórar sem taka þátt í vegantilrauninni. Verkefni matgæðinganna var að veganvæða óskarétt hvers heimilis. Hér eru uppskriftir frá tveimur þeirra úr þættinum. 

Næsti þáttur af Kjötætur óskast! er svo á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld klukkan 19.05

Oddrún Helga Símonardóttir, sem kallar sig Heilsumamman og hefur haldið fjölda matreiðslunámskeiða , heimsótti Önnsku Arndal og Úlf Þór Úlfarsson á Ísafirði. Hún bauð þeim tvo valkosti og Úlfi fannst hvorugur góður. Leist ekkert á linsubaunakássu í taco skeljum, fannst linsubaunir vondar - en hafði þó aldrei smakkað þær. Hann var hins vegar hæstánægður með matinn þegar til kom.

Linsubaunakássa í taco skeljum með kasjúsósu

LINSUBAUNAFYLLING í taco skeljar:

uppskrift fyrir 4-5

  • 1 msk hitaþolin olía
  • 1 laukur
  • 3 hvítlauksrif
  • 2-3 gulrætur
  • 1-2 sellerístönglar
  • 3-4 dl soðnar brúnar eða grænar linsur (1,5-2 dl ósoðnar)
  • 1 dós maukaðir tómatar
  • 2 msk tómatpuré
  • 2 msk Mexíkó kryddblanda
  • 1 tsk kúmin
  • salt og pipar
  • 1 stk grænmetiskraftur
  • Væn lúka fersk steinselja
  1. Leggjið linsubaunirnar í bleyti í u.þ.b. 2 klst en má alveg vera yfir nótt líka. Hellið vatninu af þeim, setjið í nýtt vatn og sjóðið í 30 mín.
  2. Hitið pönnu og mýjkið lauk í smá olíu, bætið við gulrótum og sellerí og leyfið því að malla aðeins á pönnunni ásamt kryddunum.
  3. Bætið tómatmaukinu, kraftinum og steinseljunni á pönnuna og leyfið réttinum að malla við lágan hita í nokkrar mínútur.
  4. Bætið linsunum við í lokin og kryddið með salt og pipar.
  5. Ef baunirnar fá að liggja í bleyti verða þær mun auðmeltanlegri. Ef þíð eruð tímabundin eða gleymið því þá eru samt 15-20 mín betri en ekkert.

Linsubaunakássa



GUACAMOLE:

  • 2 avókadó
  • nokkrir vel þroskaðir tómatar smátt skornir
  • vorlaukur
  • safi úr ½ lime
  • salt



CHILI KASJÚ SÓSA:

  • 3/4 dl kasjúhnetur (lagðar í bleyti í 4-6 tíma og síðan skolaðar) – (má líka setja sólblómafræ í staðinn fyrir kasjúhnetur eða blanda þeim saman)
  • Biti af ferskum chili pipar
  • 2-3 sólþurrkaðir tómatar
  • 3 msk safi úr sítrónu
  • 4-5 döðlur
  • 1/2 tsk sjávarsalt
  • 3 msk vatn
  • Salt og svartur pipar eftir smekk

Setjið allt í blandara og blandið vel.

RISTAÐ FRÆKURL:

  • 1/2 dl sólblómafræ
  • 1/2 dl graskersfræ
  • 1 msk olía
  • Salt
  • Krydd eftir smekk
  1. Hitið pönnu
  2. Setjið olíuna ásamt fræjunum á pönnuna
  3. Leyfið fræjunum að „poppast“
  4. Saltið og kryddið meira ef þið viljið
  5. Geymið í lokaðri krukku og notist yfir salöt og grænmetisrétti eða sem snakk

Baunatacoið er borið fram með guacamole, chili kasjú sósu, fersku salati, nachos og ristuðu frækurli.

EFTIRRÉTTUR - KARAMELLUKUBBAR:

Karamellan:

  • 1 dl kókosmjólk
  • 1 -2 msk kókosolía
  • 0,5 dl hlynsýróp (má setja kókospálmasykur í staðinn en hún verður töluvert dekkri)
  • 0,5 dl kókospálmasykur
  • örlítið salt og vanilludropar

Í sér skál:

  • 1,5 dl lífrænt kornflex án viðbætts sykurs
  • 1 dl gróft saxaðar hnetur/möndlur - hér má líka brytja niður hrískökur!
  • 50 dökkt súkkulaði eða heimatilbúið – brætt og sett yfir þegar nammið er orðið kalt.
  1. Setjið allt karamellu hráefnið í pott og komið upp suðu. Leyfið karamellunni að malla hressilega en passið að hún brenni ekki við. Hún þarf að verða mjög þykk og seig. Verið þolinmóð þangað til hún er orðin létt freyðandi. Lækkið þá hitann og leyfið henni að þykkna, við viljum sjá stórt sleifarfar á botninum. Ef þið takið pottinn of snemma af verður hún klístruð og erfitt að skera bitana niður.
  2. Blandið þurrefnunum saman í skál. Blandið svo saman við karamelluna í pottinum.
  3. Hellið blöndunni á bökunarpappír og þjappið henni saman.
  4. Kælið.
  5. Skreytið með smá bræddu súkkulaði (best að setja það yfir þegar búið er að kæla aðeins annars rennur það í gegn í stað þess að sitja ofan á).

„Nauta“steik á Litla-Ármóti

Í þriðja þætti heimsótti einnig Gústi kokkur kúabændurna Hrafnhildi Baldursdóttur og Ragnar Finn Sigurðsson á Litla-Ármóti sem taka þátt í vegantilrauninni. Þau óskuðu eftir veganvæðingu á uppáhaldsmat fjölskyldunnar: Hægeldaðri nautasteik með piparostarjómasósu og salati með fetaosti. Gústi dó ekki ráðalaus og mætti með vegan Wellington steik frá Jömm og útbjó ýmislegt dýrðarinnar meðlæti.

Veganútgáfa af hægeldaðri „nauta“steik með kartöflum og salati með fetaosti

Kartöflur

  • Soðnar
  • Settar í ofnfast mót og marðar með gaffli
  • Vegansmjörklípa á hverja kartöflu - kryddaðar með salti og pipar og timjan

Piparsósa

  • Toro sósugrunnur
  • vegan rjómaostur
  • pipar
  • saxaður laukur
  • hvítlaukur
  • hafrarjómi

Mýkja laukinn og hvítlaukinn, vatn eins og segir á pakkanum. Hella jurtarjómanum út í þegar laukurinn hefur brúnast aðeins. Má bragðbæta með vegansósukrafti og næringargeri.

Salatið

  • Salat
  • Tómatar
  • Sultaður rauðlaukur
  • Klípu af steinselju



Sultaður rauðlaukur

  • Rauðlaukurinn lagður yfir nótt í lög með hvítvínsediki, sinnepsfræjum og lárviðarlaufum.

Maríneraður vegan grískur ostur

  • Grísk vegan blokk ostur
  • Skera í teninga
  • Salta teningana á brettinu með grófu salti
  • Setja rauðlauk, sinnepsfræ, timjan, lárviðarlauf og fínt sneiddan hvítlauk í botninn á skálinni, ostinn ofan á og ólífuolíu yfir

Salatolía

  • Dijon sinnep
  • Hvítvínsedik eða annað ljóst edik
  • Ólífuolía
  • salt og pipar

Tengdar fréttir

Á suðupunkti í miðri vegantilraun: „Maður er alltaf svangur“

„Svona undir lok síðustu viku myndi ég segja að við hefðum orðið í fyrsta skipti alvarlega geðvond,“ segir Annska Arndal, íslenskukennari og leiðsögumaður, sem tekur þátt í vegantilrauninni í þáttaröðinni Kjötætur óskast sem er á Stöð 2 um þessar mundir.

Vegan baunaréttur með kólumbísku ívafi

„Ég þakka Völu fyrir áskorunina. Það er skemmtileg staðreynd að eldamennska hefur verið mikið í uppáhaldi hjá mér sem barn og eftir að ég varð vegan í maí 2018 þá fór ég að gera meira tilraunir með mat og hráefni,“ segir Davíð Sól Pálsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×