Innlent

RARIK byggir fyrir 750 milljónir króna á Selfossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Skóflustungur að nýrri aðstöðu RARIK á Suðurlandi tóku þau (frá vinstri til hægri) Guðlaugur Valtýsson, deildarstjóri framkvæmdasviðs Suðurlandi, Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir, skrifstofustjóri Suðurlandi, Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri og Lárus Einarsson, deildarstjóri rekstrarsviðs á Suðurlandi.
Skóflustungur að nýrri aðstöðu RARIK á Suðurlandi tóku þau (frá vinstri til hægri) Guðlaugur Valtýsson, deildarstjóri framkvæmdasviðs Suðurlandi, Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir, skrifstofustjóri Suðurlandi, Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri og Lárus Einarsson, deildarstjóri rekstrarsviðs á Suðurlandi. RARIK

Umfangsmiklar framkvæmdir eru að fara af stað hjá RARIK á Suðurlandi því ákveðið hefur verið að byggja tvö ný hús undir starfsemin á Selfossi, sem munu kostar um sjö hundruð og fimmtíu milljónir króna. RARIK er með mikil umsvif á Suðurlandi en um 40% allra heimtaugaumsókna hjá fyrirtækinu á síðasta ári voru í Árnessýslu.

Fyrstu skóflustungurnar af nýju húsunum voru teknar í gær en húsin munu rísa í Larsenstræti 4 á Selfossi við hliðina á Byko en húsin verða ný svæðisskrifstofa RARIK á Suðurlandi. Nýja aðstaðan mun auka hagræði í rekstri RARIK á Suðurlandi og jafnframt bæta vinnuskilyrði starfsmanna fyrirtækisins á svæðinu.

Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK segir þetta ánægjuleg tímamót.

Við erum með heilmikla starfsemi á Suðurlandi og það hefur verið mjög mikið um að vera í Árnessýslu í mörg ár. Það einfaldar auðvitað starfsemina að vera á einum stað heldur en að vera dreifð á Selfossi þar sem fólk er að vinna mikið saman. Undirbúningur verka annars vegar og síðan verkefnin, sem vinnuflokkarnir eru að vinna,“ segir Tryggvi Þór.

Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, sem er mjög ánægður með þá uppbyggingu, sem er að fara af stað á Selfossi.RARIK

Um er að ræða tvær nýjar byggingar, sem eru tæplega 1600 fermetrar að stærð með aðstöðu fyrir 24 starfsmenn.

„Kostnaður er áætlaður um 750 milljónir. Það á samt enn þá eftir að útfæra einhverja þætti þannig að það liggur ekki alveg endanlega fyrir,“ bætir Tryggvi Þór við.

Tryggvi Þór segir að umsvif RARIK séu mjög mikil á Suðurlandi, ekki síst í Árnessýslu þar sem miklar byggingaframkvæmdir eiga sér stað.

„Já, það hefur verið gríðarlega mikið af heimtaugaumsóknum og nýjum heimtaugum tengdum á undanförnum árum. Mjög mikið auðvitað í frístundabyggðinni, þannig að það hefur verið mjög mikið umfang í nokkuð mörg ár og hefur í rauninni verið þannig að við höfum verið með jafnmargar umsóknir um nýjar heimtaugar í Árnessýslu eins og samtals á landinu á svæði RARIK, þó auðvitað eitthvað misjafnt,“ segir Tryggvi Þór.

Afstöðumynd af mannvirkjunum við Larsenstræti 4 á Selfossi, sem RARIK er að fara að byggja.RARIK


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×