Hvers vegna dýrin lifðu af flóðin 16. janúar 2005 00:01
Vísindamenn telja sig nú hafa komist að því hvers vegna öll villt dýr á Srí Lanka lifðu af flóðbylgjurnar í Suðaustur-Asíu. Í þjóðgarðinum Yala á Srí Lanka hlupu öll villt dýr frá ströndinni og upp til hæða áður en flóðbylgjurnar riðu yfir eyjuna. Fuglafræðingar garðsins tóku eftir að hegðun fuglanna og hljóðin sem þeir gefa frá sér breyttust mjög skyndilega, þónokkuð áður en hamfarirnar dundu yfir. Tvö hundruð fílar eru í garðinum. Þeir byrjuðu skyndilega að hlaupa allt hvað af tók inn til landsins áður en flóðbylgjurnar skullu á ströndinni og þjóðgarðsverðir segja að þeir hafi allir lifað af. Hvernig má þetta vera?, spyr fólk sig og velta menn því fyrir sér hvort dýrin hafi hreinlega sjötta skilningarvitið að þessu leiti. Vísindamenn segja að það hafi líklegast verið mjög næm heyrn og háþróuð þekking á umhverfinu sem hafi bjargað dýrunum. Dr. Padmalal, dýrafræðingur þjóðgarðsins, segir að dýrin hafi notað samskiptakerfi á tíðnisviði sem er mun lægra en svo að mannseyrað greini og nái þetta tíðnisvið yfir mjög langar vegalengdir. Menn verði ekki varir við þetta samskiptakerfi dýranna. Klifurhæfileikar björguðu einnig þónokkrum dýrum. Á einum stað við ströndina stóðu sextán Japanar og mynduðu flóðbylgjuna í stað þess að leggja á flótta. Þeir létust allir. Aparnir á svæðinu lifðu hins vegar allir af með því að klifra upp í næsta tré.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Sjá meira