Rafael Benitez með fleiri stig en Jürgen Klopp frá 13. janúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2019 12:00 Hér fer mjög vel á með þeim Jürgen Klopp og Rafa Benitez. Getty/Andrew Powell
Rafael Benitez hefur náð að snúa við blaðinu hjá liði Newcastle United en lið spænska knattspyrnustjórans hefur verið eitt besta lið ensku úrvalsdeildarinnar undanfarna tvo mánuði. Newcastle liðið tapaði á móti Chelsea 12. janúar en hefur síðan komið öflugt til baka. Aðeins tvö lið í deildinni hafa náð í fleiri stig á síðustu tveimur mánuðum eða Manchester City (21) og Manchester United (17). Newcastle hefur 16 stig eða jafnmörg stig og Arsenal. Newcastle dettur reyndar niður í fjórða sætið á eftir Arsenal á slakari markatölu. Newcastle er með þrjú fleiri stig en Jürgen Klopp og lærisveinar hans í Liverpool en Liverpool hefur reyndar aðeins leikið sjö leiki á þessum tíma eða einum leik færra en Newcastle. Daniel Storey tók saman þessa stigatöflu hér fyrir neðan og birti á Twitter.Premier League table since weekend of January 12, when Newcastle lost at Chelsea. Rafael Benitez is doing it again. pic.twitter.com/MtEzHXoXVb — Daniel Storey (@danielstorey85) March 9, 2019 Eftir tapleikinn á móti Chelsea höfðu lærisveinar Rafael Benitez aðeins náð í eitt stig í fjórum leikjum og aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum sínum. Það var farið að hitna verulega undir Spánverjanum. Honum tókst hins vegar að koma liði sínu í gang og byrjunin var að vinna 3-0 sigur á Cardiff City 19. janúar. Liðið vann síðan Manchester City tíu dögum síðar og staðan var orðin allt önnur. Á þessum tíma hefur Newcastle liðið farið frá því að vera í fallsæti í að komast upp í þrettánda sæti deildarinnar. Þetta leit ekki vel út um helgina þegar liðið lenti 2-0 undir á móti Everton en frábær endurkoma í seinni hálfleik tryggði Newcastle 3-2 sigur og þrjú stig. Fimm sigar í síðustu átta leikjum og aðeins tvö töp. Tapleikirnir komu á móti Tottenham (0-1) og West Ham (0-2) en sigurleikirnir eru á móti Cardiff, Manchester City, Huddersfield, Burnley og Everton.
Enski boltinn Mest lesið Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist Fótbolti „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Íslenski boltinn Vann Ólympíubrons en ætlar að keppa á Steraleikunum og slá heimsmetið Sport „Sex til sjö leikmenn haltrandi inni á vellinum“ Íslenski boltinn Janus sagður á leið til Barcelona Handbolti „Svekkjandi að við gefum þeim fjögur mörk“ Íslenski boltinn Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Fótbolti Mourinho tekur við Benfica Fótbolti Fleiri fréttir Fimm sigurmörk á síðustu sjö mínútunum Swansea gafst ekki upp og skaut Forest úr leik Slot skýtur á þá sem gagnrýna eyðslu Liverpool Ragnar við toppinn í Fantasy: „Er þetta ekki rólegasti tíminn fyrir rithöfunda?“ Brot af því besta úr DocZone: „Er þetta ekki hættulegt?“ Linsan datt út en varði samt tvö víti Hákon reyndist hetja Brentford Fær 54 milljónir í vikulaun en æfir einn og yfirgefinn Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Víti í blálokin dugði Liverpool Tvö frá Haaland og Manchester er blá Hvoru megin í Manchester er meiri krísa? Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Zubimendi með tvö í frábærum sigri Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur Staðfestir að Bayindir verði í markinu gegn Man City Delap gæti verið frá fram í desember Grealish valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn Viðhafnarútsending af Doc Zone: Fimm leikir í enska og lokaumferðin í Lengjunni Sjá meira