Elfar Aðalsteins á Óskarslista Freyr Gígja Gunnarsson skrifar 17. desember 2011 14:00 Sailcloth er önnur stuttmynd Elfars Aðalsteinssonar en hún er ein tíu stuttmynda sem geta hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna.
Stuttmyndin Sailcloth eftir íslenska leikstjórann Elfar Aðalsteinsson er ein þeirra tíu stuttmynda sem koma til greina hjá bandarísku kvikmyndaakademíunni þegar tilnefningar til Óskarsverðlauna verða kunngjörðar í janúar á næsta ári. Þetta var tilkynnt í vikunni. Valið stóð á milli 107 stuttmynda. Sailcloth er önnur stuttmynd Elfars en hún skartar sjálfum John Hurt í aðalhlutverki. Myndin er lauslega byggð á ævi útgerðarmannsins Alla ríka sem jafnframt er afi Elfars og leikstjórinn sjálfur var raunar staddur á Íslandi í stuttri heimsókn þegar hann fékk fréttirnar. „Mér dauðbrá, satt best að segja, en á mjög jákvæðan hátt,“ segir Elfar í samtali við Fréttablaðið. Hann var þá kominn heim til Englands, með tvíreykt hangikjöt, rjúpur og malt og appelsín í farteskinu, það skal halda alvöru íslensk jól á enskri grund. Flestalla kvikmyndagerðarmenn dreymir eflaust um, á einum eða öðrum tímapunkti, að vera tilnefndir til Óskarsverðlauna og Elfar viðurkennir að hafa sjálfur átt þann draum. Hann er hins vegar með báðar fæturna á jörðinni. „Ég er mjög ánægður, þetta opnar ákveðnar dyr fyrir dreifingu og breytir miklu fyrir myndina í framhaldinu,“ segir Elfar sem fékk póst frá John Hurt, aðalleikara myndarinnar, eftir að þetta varð ljóst. „Hann óskaði okkur bara til hamingju,“ segir Elfar en Hurt leikur einnig í annarri mynd sem á möguleika á tilnefningu.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira