Skólarnir besti vettvangurinn fyrir íþróttafélögin Linda Blöndal skrifar 12. júlí 2014 19:15
Kynningar bannaðarÍþróttafélögum hefur undanfarin þrjú ár verið bannað að kynna starfsemi sína í grunnskólum.Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að þetta komið illa niður á börnum af erlendum uppruna með annað móðurmál en íslensku en foreldrar þeirra séu til dæmis oft ekki meðvitaðir um að Frístundakort sé í boði.Íþyngjandi reglurNýting kortsins er mun minni í hverfi 111 í Reykjavíkurborg þar sem býr hátt hlutfall fólks af erlendum uppruna. Bannið byggir á þeirri reglu að ekki megi stunda neins konar markaðssetningu í skólum og lífskoðunarfélög megi ekki kynna sig þar - þetta er meðal annars byggt á áliti Umboðsmanns barna og Talsmanni neytenda.Íþróttafélög ekki sölufyrirtækiIngvar segir samstarfið við Reykjavíkurborg hafa verið gott og svo verði vonandi áfram en tekur undir gagnrýnina sem kemur fram í Fréttablaðinu í dag. “Þessar reglur hafa verið íþyngjandi. Íþróttafélög í Reykjavík eru ekki fyrirtæki sem eru að selja einhverja vöru og markaðssetja til barna og er ekki trúar eða lífsskoðunarfélag. Þvert á móti. Íþróttahreyfingin leggur sig í líma við það að veita öllum almenningi og sérstaklega börnum og unglingum, jafnt aðgengi að því starfi sem við erum að vinna”, sagði Ingvar í fréttum Stöðvar tvö í kvöld.Auka þarf samstarfiðStarfshópur á vegum Skóla og frístundaráðs Reykjavíkur skilaði af sér skýrslu í mars síðastliðnum um heilsueflingu og hreyfingu grunnskólabarna og þar var einmitt nefnt að auka þyrfti samstarf hinna ólíku íþróttafélaga borgarinnar og skóla. En eins og er, er ekki sátt um ríkjandi fyrirkomulag. “Við verðum að leyfa því starfi sem er í hverju hverfi fyrir sig að þróast á sinn hátt. Þetta er spurning um stjórnun og skipulag”, sagði Ingvar og bætti við að skólarnir væru sá miðpunktur sem næði til allra flesta, og þar með yrðu færri útundan. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri sagði í samtali við fréttastofu í dag að skólastjórnendur kalli á almennar reglur en borgin væri þó opin fyrir því að skoða málið betur.
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Innlent Fleiri fréttir Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Sjá meira