Engar uppsagnir þrátt fyrir breytingar hjá lögreglunni á suðurnesjum 19. mars 2008 17:47
Skipulagsbreytingar verða gerðar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, þannig að yfirstjórn tollgæsluverkefna verði óskoruð á forræði fjármálaráðherra og yfirstjórn öryggisverkefna vegna flugverndar á Keflavíkurflugvelli verði á forræði samgönguráðherra. Löggæsla og landamæragæsla verði áfram á forræði dóms- og kirkjumálaráðherra. Engar uppsagnir eru fyrirhugaðar í tengslum við breytingarnar. Skipulagsbreytingarnar fela í sér að yfirstjórn löggæslu-, tollgæslu- og öryggisgæslumála á Keflavíkurflugvelli verður ekki öll í höndum lögreglustjórans á Suðurnesjum. Eftir breytingarnar verða tollgæsluverkefni á forræði fjármálaráðherra og öryggisgæsla á Keflavíkurflugvelli vegna flugverndar á forræði samgönguráðherra. Löggæsla og landamæragæsla verður áfram á forræði lögreglustjórans og dóms- og kirkjumálaráðherra. Tilgangurinn er að tryggja skýra verkaskiptingu, valdsvið og ábyrgð við stjórnsýslulega framkvæmd á Keflavíkurflugvelli og Suðurnesjum. Rekstrargrundvöllur verður í samræmi við skilgreind verkefni hvers ráðuneytis. Ríkisframlag stendur undir löggæslu og nær allri tollgæslu, en tekjur flugvallarins standa undir öryggisgæslu. Forræði á sviði stjórnsýslu og samfélagsþróun á Suðurnesjum verða að haldast í hendur til að tryggja hátt þjónustustig. Skipulagsbreytingarnar miða að því að styrkja daglega löggæslu í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum með því að einfalda rekstur lögreglustjóraembættisins. Jafnframt er þeim ætlað að styrkja tollgæslu og samhæfða framkvæmd flugverndarmála. Lögð er áhersla á, að ekki verði hróflað við hinu nána og góða faglega samstarfi við lög- og tollgæslu á svæðinu. Nú fer í hönd undirbúningsvinna vegna breytinganna og er stefnt að því að nýtt skipulag taki gildi frá 1. júlí 2008. Engin röskun verður á starfsemi Keflavíkurflugvallar og löggæslu á Suðurnesjum og engar uppsagnir eru fyrirhugaðar í tengslum við breytingarnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Dóms- og krikjumálaráðuneytinu.
Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Erlent Fleiri fréttir Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Sjá meira