Olíuverð og gengissveiflur ólíðandi fyrir ferðaþjónustuna 19. mars 2008 12:19
Aðilar í ferðaþjónustu segja hátt olíuverð og gengissveiflur undanfarna daga nær ólíðandi og má búast við frekari hækkunum á næstunni. Ferðaskrifstofur verja meiri tíma í að fylgjast með gengi krónunnar heldur en bókunum farþega. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var greint frá því að ferðaskrifstofur væru þegar hafnar að hækka verð á ferðum sínum vegna gengisbreytinga undanfarinna daga. Eru dæmi um að fjölskylduferðin hafi hækkað um tæpar 16 þúsund krónur. Ofan á gengissveiflurnar bætist síðan við olíuverð sem nú er í sögulegu hámarki og allt þetta hefur áhrif á aðila í ferðaþjónustu. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur gengi krónunnar ekki teljandi áhrif á afkomu félagsins. Olíuverð hefur hins vegar mun meiri áhrif og er reynt eftir fremsta megni að jafna út sveiflur í olíuverði. Haldist heimsmarkaðsverðið á olíu hátt til lengdar er þó óumflýjanlegt að hækkanirnar skili sér í verðlagið. Matthías Imsland forstjóri Iceland Express, segir gengissveiflur undanfarinna daga erfiðar fyrir rekstur félagsins og að ástandið sé nánast óviðunandi. Á endanum skili þetta sér út í verðlagið en það virðist þó ekki hafa áhrif á bókanir sem eru fleiri en í fyrra.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Sjá meira