Hundruð farast við Indlandshaf 28. mars 2005 00:01
Stór jarðskjálfti varð á botni Indlandshafs vestur af ströndum Súmötru í Indónesíu síðdegis í gær, skammt frá upptökum hamfaraskjálftans sem varð á annan í jólum. Íbúar strandhéraða landanna í kring flúðu í skelfingu inn í land er fréttir af nýja skjálftanum bárust, af ótta við að önnur eins flóðbylgja riði yfir og þremur mánuðum fyrr. Ótti um nýjar hamfarir fjaraði hins vegar fljótt út eftir að það fréttist að engrar flóðbylgju hefði orðið vart er þrír til fjórir tímar voru liðnir frá því skjálftinn reið yfir. "Það lítur út fyrir að skjálftinn hafi ekki valdið neinni flóðbylgju," hefur AP-fréttastofan eftir Prihar Yadi, jarðfræðingi við jarðvísindastofnun Indónesíu. Í kjölfarið afturkölluðu yfirvöld flóðbylgjuviðvörun sem þau höfðu gefið út. Á þeim svæðum sem næst voru skjálftamiðjunni varð þó nokkurt tjón. Hús hrundu á eynni Nias, sem er eftirsóttur dvalarstaður brimbrettafólks. Héraðsyfirvöld tilkynntu að um 300 manns væru grafin undir rústunum. Að sögn bandarísku jarðvísindastofnunarinnar varð skjálftinn klukkan 16.09 að íslenskum tíma og mældist 8,7 á Richter-kvarða að styrkleika. Skjálftamiðjan var á um 30 kílómetra dýpi um 410 km suðvestur af borginni Banda Aceh á Súmötru, sem varð mjög illa úti af völdum flóðbylgjunnar 26. desember. Frá skjálftamiðjunni eru þó innan við 200 km að strönd Súmötru og aðrar minni eyjar eru mjög nálægt henni, Nias þar á meðal. Skjálftinn telst vera eftirskjálfti eftir stóra skjálftann á annan í jólum, sem var 9 á Richter. Það var sterkasti jarðskjálfti sem mælst hefur á jörðinni síðastliðin 40 ár. Flóðbylgjan sem hann kom af stað olli gríðarlegri eyðileggingu í strandhéruðum landa allt í kringum Indlandshaf. Að minnsta kosti 174.000 manns biðu bana og yfir 100.000 er enn saknað.
Erlent Fréttir Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira