Segja miklar skemmdir í skjálfta 28. mars 2005 00:01
Öflugur jarðskjálfti sem mældist 8,2 á Richterskvarða varð skammt undan strönd Súmötru síðdegis. Fregnir berast af miklum skemmdum en sérfræðingar segja minni líkur á flóðbylgju þeirri sem reið yfir annan dag jóla á sama svæði. Það var skömmu fyrir klukkan fimm að íslenskum tíma að fyrstu fregnir bárust af skjálftanum sem varð skammt undan ströndum Súmötru, ekki langt frá þeim stað sem skjálftinn annan dag jóla varð, eða tvö hundruð kílómetra vestur af Sibolga á Súmötru. Jarðskjálftamælar gefa til kynna að skjálftinn hafi orðið níu mínútur yfir fjögur. Skjálftinn stóð í tvær til fimm mínútur og sjónarvottar segja nokkrar skemmdir hafa orðið - sumir segja meiri skemmdir en annan dag jóla. Það þýðir þó ekki að skjálftinn hafi verið öflugri heldur kann hann að hafa verið nær landi eða upptökin ekki jafn djúpt í bergi. Skjálftinn var á bilinu 8,2-8,5 á Richter samkvæmt mælingum japönsku veðurstofunnar sem notast við annan mælikvarða. Skjálftinn annan dag jóla var nokkuð sterkari, 8,9 á Richter. Fréttastofa Sky hefur eftir sérfræðingum að skjálftinn í dag sé þrjátíu sinnum kraftminni. Yfirvöld í löndunum næst skjálftamiðjunni og reyndar á Indlandi og Srí Lanka hafa gefið út viðvaranair enda mikilvægt að fólk forði sér þegar í stað frá ströndinni og upp á land ef ske kynni að flóðbylgja myndaðist. Engar fregnir hafa þó borist af flóðbylgju og jarðskjálftafræðingar sögðu að líkast til færi bylgjan í áttina að eyjunni Máritíus ef hún hefði myndast. Engu að síður hafa borist fregnir af skelfingu á Taílandi og á austurströnd Srí Lanka hefur verið skipað fyrir um brottflutning fólks og hið sama gildir um Indland. Ferðamenn á hótelum í Taílandi sem haft hafa samband við Sky-fréttastofuna segja að þar hafi mikill ótti gripið um sig. Enn sem komið er hafa ekki borist fregnir af flóðbylgju en ekkert kerfi er fyrir hendi í Indlandshafi til að mæla bylgjur hafsins og vara við flóðbylgjum og því er ekki enn vitað hvort að flóðbylgja hefur myndast. Jarðskjálftafræðingar segja víst að flóðbylgja yrði mun minni en sú sem kostaði þrjú hundruð þúsund manns lífið 26. desember síðastliðinn. Jarðfræðingar segja raunar nánast útilokað að sambærilegur skjálfti og flóðbylgja verði á næstunni enda tíminn á milli hamfara af þessu tagi mældur í öldum. Jarðskjálftafræðingar hafa þó sagt líkur á öðrum öflugum jarðskjálfta á sama svæði og flóðbylgjan varð. Skjálftinn annan dag jóla jók í raun líkurnar á öflugum eftirskjálftum, einkum eftir tveimur öðrum brotalínum skammt frá, annars vegar Súmötrubrotalínunni, þar sem öflugur jarðskjálfti gæti orðið, og svo í Sunda-skurðinum.
Erlent Fréttir Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Fleiri fréttir Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Sjá meira