Læri­sveinar Stóra Sam fyrstir allra til að taka stig af Liver­pool á Anfi­eld á leik­tíðinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn WBA fagna marki sínu í dag.
Leikmenn WBA fagna marki sínu í dag. Adam Fradgley/Getty Images

Liverpool og West Bromwich Albion gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. WBA varð þar með fyrsta liðið til að taka stig af Liverpool á Anfield á leiktíðinni.

Meistararnir byrjuðu mun betur og voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik. Sadio Mané kom þeim yfir strax á 12. mínútu leiksins og var forystan sanngjörn. Segja má að West Bromwich hafi verið heppnir að sleppa inn í hálfleik með stöðuna aðeins 1-0 Liverpool í vil.

Eitthvað hefur Stóri Sam Allardyce sagt við sína menn í síðari hálfleik en það var allt annað að sjá til liðsins í síðari hálfleik. Þeir ógnuðu ítrekað með skyndisóknum sínum og það var svo á 82. mínútu leiksins sem miðvörðurinn Semi Ajayi jafnaði metin eftir vel útfærða hornspyrnu.

Sam Johnstone, markvörður WBA, varði svo meistaralega frá Roberto Firmino undir lok leiks og lokatölur því 1-1 á Anfield í dag. Var þetta fyrsti leikur Englandsmeistaranna á heimavelli þar sem þeir taka ekki þrjú stig.

Liverpool trónir sem fyrr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en liðið er með 32 stig að loknum 15 leikjum. Þremur stigum á undan nágrönnum sínum í Everton. WBA er enn í 19. sæti, nú með átta stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira