Chelsea gekk frá West Ham undir lokin

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tammy Abraham skoraði tvívegis í kvöld.
Tammy Abraham skoraði tvívegis í kvöld. EPA-EFE/Clive Rose

Chelsea vann 3-0 sigur á grönnum sínum í West Ham United í síðari leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var frekar tíðindalítill framan af en það tók heimamenn þó aðeins tíu mínútur að komast yfir. Þar var að verki Thiago Silva með þrumuskalla eftir hornspyrnu Mason Mount og staðan því orðin 1-0.

Timo Werner fékk gott færi til að tvöfalda forystu heimamanna um miðbik fyrri hálfleiks en honum brást bogalistin. Fleira markvert gerðist ekki í fyrri hálfleik og Chelsea marki yfir í hálfleik.

Síðari hálfleikur var engin flugeldasýning á tveggja mínútna kafla undir lok leiks skoraði Tammy Abraham tvívegis og staðan allt í einu orðin 3-0. Fyrra markið kom á 78. mínútu þegar Abraham stýrði slöku skoti Werner í netið. Aðeins 101 sekúndu síðar var hann aftur á ferðinni með skoti af stuttu færi og staðan orðin 3-0.

Reyndust það lokatölur leiksins en Werner skaut í slá úr þröngu færi undir lok leiks. Chelsea er þar með komið upp í 5. sæti deildarinnar, upp fyrir nágranna sína í Tottenham Hotspur, með 25 stig. West Ham er á sama tíma í 10. sæti með 21 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira