Markalaust í Manchester slagnum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Stál í stál.
Stál í stál. vísir/Getty

Ekkert mark var skorað þegar Manchester liðin í ensku úrvalsdeildinni leiddu saman hesta sína á Old Trafford í dag.

Leikurinn var heilt yfir frekar bragðdaufur en bæði lið fengu þó tækifæri til að komast í forystu í fyrri hálfleik.

Scott McTominay komst næst því að skora fyrir Man Utd þegar hann rétti missti af boltanum á fjærstöng eftir að Victor Lindelöf hafði skallað að marki. Skömmu síðar fékk Riyad Mahrez besta færi leiksins þegar hann slapp einn gegn David De Gea. Spánverjinn sá við honum og markalaust í leikhléi.

Fátt markvert gerðist í síðari hálfleik og geta varnarmenn beggja liða gengið sáttir frá leiknum þar sem honum lauk 0-0.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira