Fótbolti

Sagði Dani heppna og bjóst við skilaboðum frá kærustunni

Sindri Sverrisson skrifar
Christian Eriksen á ferðinni á Parken í kvöld.
Christian Eriksen á ferðinni á Parken í kvöld. Getty/Gaston Szermann

Christian Eriksen segir Dani hafa verið heppna að ná að skora sigurmark í lokin gegn Íslandi sem hafi spilað betur í seinni hálfleiknum á Parken í kvöld.

Danmörk vann 2-1 og skoraði Eriksen bæði mörk Dana úr vítum, það seinna í uppbótartíma.

„Þetta var erfiður leikur, mikið af einvígum og baráttu. Þetta voru tvö taktísk lið. Þeir biðu mikið eftir okkur í fyrri hálfleik og við sköpuðum fáein færi og vorum meira með boltann. Þeir voru beittari í seinni hálfleik og við sköpuðum í raun ekki neitt þá, en vorum heppnir í lokin að ná að skora,“ sagði Eriksen.

Aðspurður um eigin frammistöðu svaraði hann:

„Það verða aðrir að svara því. Mér fannst allt liðið standa sig bærilega, við börðumst vel og sýndum þrautseigju. Við töpum ekki svo glatt. Ég er auðvitað ánægður með að skora mörk en það er alltaf aðeins öðruvísi af vítapunktinum en úr opnum leik.“

Danmörk á nú möguleika á að vinna riðilinn en þarf þá að vinna Belgíu á miðvikudagskvöld:

„Það væri afar mikilvægt og rosaleg yfirlýsing frá þjóð eins og okkar, í riðli með Englandi, Belgíu og Íslandi. Við getum verið stoltir af að vera komnir í úrslitaleik gegn Belgum, og við eigum líka harma að hefna eftir tap gegn Belgum í fyrsta leik. Þetta verður spennandi leikur og vonandi náum við að sýna hvað við getum,“ sagði Eriksen.

Eriksen tók gamla góða „óléttufagnið“ þegar hann skoraði fyrra mark sitt í kvöld, með því að setja boltann undir treyjuna, og var spurður hvað það hefði átt að þýða:

„Ég held að það sé augljóst. Ég hef grínast aðeins um þetta með kærustunni minni, við eigum von á okkar öðru barni. Ég skoraði á Wembley en gleymdi þessu því ég var að hugsa um svo margt annað, en ég varaði hana ekkert við og ég reikna með að hún sé búin að vera að senda skilaboð og hringja núna og spyrja hvað sé í gangi.“


Tengdar fréttir

Viðar Örn: Þeir refsa ef þú gerir ein mistök

Markaskorari Íslands var súr eftir tapið gegn Dönum en Viðar Örn Kjartansson var á því að Ísland hefði átt allavega stig skilið úr leik kvöldsins sem tapaðist 2-1.

Hann hoppar inn í mig og þetta er aldrei víti

„Fyrir mér er þetta aldrei víti,“ segir Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í fótbolta, sem fékk dæmt á sig víti í 2-1 tapinu gegn Danmörku í Þjóðadeildinni í kvöld.

Sjáðu Viðar Örn jafna metin á Parken

Viðar Örn Kjartansson þurfti ekki langan tíma til að setja mark sitt á leik Íslands og Danmerkur á Parken. Það dugði þó ekki til að fá stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×