Fótbolti

Segir marga leik­menn sína hafa spilað á Eng­landi og því ætti veðrið ekki að hafa á­hrif

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Roberto Martínez hefur stýrt belgíska landsliðinu frá 2016 með frábærum árangri.
Roberto Martínez hefur stýrt belgíska landsliðinu frá 2016 með frábærum árangri. stöð 2 sport

Roberto Martinez, þjálfari belgíska landsliðsins í fótbolta, reiknar ekki með auðveldum leik gegn Íslandi er liðin mætast á Laugardalsvelli annað kvöld. Hann segir sitt lið klárt í bátana eftir slæm úrslit gegn Englendingum í síðustu umferð Þjóðadeildarinnar.

Neðst í fréttinni má sjá viðtal Vísis við Martinez.

„Það var mjög súr stemning í leikmannahópnum eftir tapið gegn Englandi svo það má búast við liði sem vill bæta upp fyrir það. Það er stutt síðan liðin mættust síðast svo við vitum hvað Ísland vill gera og þeir vita hvað við viljum gera. Við vitum að þetta verður mjög erfiður leikur og við þurfum að vera tilbúnir í það, þurfum að spila okkar leik eins vel og við mögulega getum,“ sagði Martinez við Vísi í dag.

Aðspurður hvort við myndum sjá Belgíu reyna nýta sér það að íslenska liðið væri vængbrotið þá benti Martinez góðfúslega á að Belgarnir væru líka án lykilmanna á borð við markvörðinn Thibaut Courtois [Real Madrid], Kevin de Bruyne [Manchester City], Eden Hazard [Real Madrid], Thorgan Hazard [Borussia Dortmund] og Dries Mertens [Napoli].

„Að vera án leikmanna er hluti af fótbolta í dag. Við erum með fimm lykilmenn fjarverandi. Öll landslið eru í sömu aðstæðum. Við erum að spila þrjá leiki með stuttu millibili. Ísland stóð sig frábærlega í leiknum gegn Rúmeníu og er nú komið í leik sem getur gefið þeim sæti á EM. Leikurinn á móti Dönum var mjög jafn í fyrri hálfleik eins og þú býst við þegar íslenska landsliðið spilar svo þetta verður erfiður leikur. Við reiknum ekki með að fá neitt gefins frá öflugu íslensku liði sem heldur stöðu mjög vel og við þurfum að vera upp á okkar besta til að fá það sem við viljum út úr leiknum,“ sagði Martinez jafnframt. 

„Leikmenn okkar eru reynslumiklir og sumir þeirra spila eða hafa spilað í Englandi svo ég tel ekki að kuldinn muni hafa nein áhrif á þá,“ sagði Martinez og glotti við tönn áður en hann hélt áfram.

„Ég held að þetta snúist meira um ferðalögin, við höfum stuttan tíma til að jafna okkur eftir leiki og verðum að gera það vel. Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem við spilum þrjá leiki í sama landsleikjahléinu. Svo það hefur eflaust meiri áhrif heldur en veðrið eða þá þær aðstæður sem við lifum við núna.“

Martinez telur ekki að smit starfsliðs Íslands muni hafa nein áhrif á leik morgundagsins þó hann vorkenni þjálfarateyminu þar sem þeir geta ekki verið á hliðarlínunni. Það eru ekki margir landsleikir á ári og leiðinlegt að missa úr leik. Þá taldi hann engar líkur að leiknum yrði frestað. 

Klippa: Viðtal við þjálfara Belgíu

Leikur Íslands og Belgíu hefst klukkan 18:45 á morgun og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsending hefst klukkan 17:45.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×