Fótbolti

Ísland gæti kvatt elítuhópinn á miðvikudag

Sindri Sverrisson skrifar
Ísland - Danmörk Þjóðardeildin Laugardalsvöllur ksí
Ísland - Danmörk Þjóðardeildin Laugardalsvöllur ksí Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Tap gegn Belgíu á miðvikudag gæti sent Ísland niður úr deild þeirra bestu í Þjóðadeildinni í fótbolta. Fleira er í húfi í leiknum, gegn besta landsliði heims.

Ísland hefur frá stofnun Þjóðadeildarinnar leikið í efstu deild, A-deild. Það er vegna þess hve góðum árangri liðið hafði náð síðustu árin fram að því að keppninni var hleypt af stokkunum haustið 2018.

Í slagnum við sum af allra bestu liðum heims hefur uppskeran í Þjóðadeildinni verið rýr, núll stig í sjö leikjum.

Ísland virtist fallið úr A-deild eftir fyrstu keppnina í Þjóðadeildinni, eftir töpin gegn Sviss og Belgíu, en UEFA ákvað að stækka A-deildina úr 12 liðum í 16 lið og því hélt Ísland sæti sínu.

Í keppninni í ár hefur Ísland tapað fyrri þremur leikjum sínum af sex. Ef Ísland tapar gegn Belgíu á miðvikudag, og Danmörk vinnur England, er ljóst að Ísland endar neðst í 2. riðli og fellur (nema auðvitað að A-deild verði enn stækkuð, sem er afskaplega ólíklegt). 

Danmörk er með 4 stig og það virðist helst von til þess að Ísland geti haldið sæti sínu í keppninni á kostnað Dana, þó það sé orðið mjög ólíklegt eftir 3-0 tapið gegn þeim í gær.

Keppnin í ár hjálpar Íslandi ekki á HM

Það er svo ekki með öllu ljóst hvaða máli það skiptir að vera í B-deild í stað A-deildar í næstu Þjóðadeild, sem fram fer frá júní til september 2022 vegna þess að HM er undir lok þess árs.

Ísland fengi vissulega viðráðanlegri andstæðinga í B-deild, sem einhverjir gætu talið kost. Ísland gæti hins vegar ekki orðið Þjóðadeildarmeistari, það geta aðeins lið í A-deild.

Stór kostur við að vera í A-deild í síðustu Þjóðadeild er að það tryggði Íslandi sæti í EM-umspilinu sem nú er í gangi. Hins vegar er óvíst að sama fyrirkomulag verði varðandi undankeppni EM 2024.

Aron Einar Gunnarsson hefur verið fyrirliði Íslands á gullaldarárum liðsins. Með sigri á Ungverjalandi 12. nóvember gæti Aron leitt Ísland á þriðja stórmótið í röð.vísir/vilhelm

Það er ljóst að betra hefði verið fyrir Ísland að vera í B-deild Þjóðadeildar í ár, upp á að komast á HM 2022. Í gegnum Þjóðadeildina núna fást nefnilega tvö sæti í HM-umspili, fyrir tvö lið sem vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni (en komast ekki á HM eða í umspilið í gegnum undankeppnina á næsta ári).

Hver sigur telur á heimslista

Fleira en vera í A-deild er í húfi í þeim þremur leikjum sem eftir eru í Þjóðadeildinni hjá Íslandi. Hver leikur skiptir máli upp á röðun á heimslista FIFA. Staðan þar í nóvember ræður því í hvaða styrkleikaflokki Ísland verður þegar dregið verður í undankeppni HM 2022.

Ísland er, eftir sigurinn gegn Rúmeníu og tapið gegn Danmörku, í 23. sæti af Evrópuþjóðum á heimslista FIFA. Ísland þarf því aðeins að fara upp um þrjú sæti til að komast í 2. styrkleikaflokk og losna þar með við sterkan mótherja í undankeppni HM á næsta ári.


Tengdar fréttir

Hamrén skildi ekkert í fyrsta marki Dana

Erik Hamren, landsliðsþjálfari, var vonsvikinn eftir 3-0 tapið gegn Dönum á Laugardalsvelli í kvöld. Hann var þó stoltur af frammistöðunni í fyrri hálfleik og segir að liðið hafi átt skilið meira en að vera 1-0 undir í hálfleik.

Mjög mikið afrek að vinna svo stóran sigur hér

„Ég er mjög ánægður. Það er mjög erfitt að koma hingað og spila gegn þessu íslenska liði,“ sagði Kasper Hjulmand, þjálfari Dana, eftir 3-0 sigurinn gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Höfðum heppnina með okkur í fyrstu tveimur mörkunum

Christian Eriksen var ánægður með frammistöðu danska liðsins í 3-0 sigrinum gegn Íslandi í kvöld en viðurkenndi að Danir hefðu haft heppnina með sér í fyrsta og jafnvel öðru marki leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×