Meistarar Man. City og Leicester í 8-liða úrslit

Sergio Agüero skoraði sigurmarkið í kvöld.
Sergio Agüero skoraði sigurmarkið í kvöld. vísir/getty

Ríkjandi Englands-, bikar- og deildarbikarmeistarar Manchester City unnu í kvöld 1-0 sigur gegn B-deildarliði Sheffield Wednesday á útivelli í ensku bikarkeppninni.

Sergio Agüero skoraði eina mark leiksins á 53. mínútu og þó að mörkin hefðu hægilega getað orðið fleiri hjá meisturunum þá skiptir það engu máli og liðið er komið í 8-liða úrslit.

Leicester er sömuleiðis komið í 8-liða úrslit eftir 1-0 sigur á Birmingham. Ricardo Pereira skoraði sigurmarkið á 82. mínútu.

Leikur Tottenham og Norwich stendur enn yfir en þar er komin framlenging. Sextán liða úrslitunum lýkur á morgun með leik Derby og Manchester United.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira